iPhone svindlarinn með margar kærur á bakinu hér á landi Andri Ólafsson skrifar 14. janúar 2013 18:42
Íslenskur svikahrappur situr nú í varðhaldi í Danmörku grunaður um umfangsmikil fjársvik. Sami maður er með margar kærur á bakinu hér landi vegna svipaðra brota. RÚV greindi frá því í dag að maðurinn hefði verið handtekinn í Kaupmannahöfn í lok október. Fréttastofa Stöðvar 2 fékk það staðfest síðar að maðurinn sé grunaður um að hafa fengið fólk til að kaupa fyrir sig Iphone síma sem hann sagðist svo ætla að endurselja á Íslandi á hærra verði og mynda þannig hagnað. Þannig mun maðurinn hafa fengið 6 til 8 hundruð síma frá einstaklingum sem maðurinn sveik svo um greiðslu. Þetta eru háar upphæðir sem um ræðir, 4,8 milljónir danskra króna, um 110 milljónir íslenskra króna. RÚV segir frá því að maðurinn hafi verið handtekinn í miðborg Kaupmannahafnar og verði í gæsluvarðhaldi þangað til að dómur verði kveðinn upp í málinu. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur heimildir fyrir því að maðurinn sem um ræðir heiti Halldór Viðar Sanne. Halldór þessi er með nokkrar kærur á bakinu hér á landi frá fólki sem telur hann hafa svikið sig. Þessi mál hafa verið til rannsóknar hjá fjármunabrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar fengust þær upplýsingar að rannsókn á þeim málum væri á lokastigi en ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvort ákært verði. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Halldór Viðar Sanne með um fimm fjársvikamál á bakinu hér á landi, fyrir utan stóra iPhone svindlið í Kaupmannahöfn.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Sinueldur í Grafarvogi Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira