Fyrirtæki vöruð við flóknum svikum tölvuþrjóta 15. janúar 2013 14:58
Lögregla á Norðurlöndum varar við tölvuinnbrotum sem eiga sér stað í samskiptum norrænna og kínverskra fyrirtækja í þeim tilgangi að komast yfir lögmætar greiðslur fyrir vörur og þjónustu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. Brotin fara þannig fram að glæpamenn „hakka sig inn í" tölvupóstsamskipti norrænna og kínverskra fyrirtækja sem sinna löglegum innflutningi/útflutningi. Þannig komast glæpamennirnir yfir upplýsingar um viðskipti og fjármunatilfærslur á milli fyrirtækjanna þar með talið upplýsingar um bankareikninga og hvenær von er á næstu greiðslu. Glæpamennirnir koma sér því næst upp tölvupóstfangi sem er nánast eins og tölvupóstfang útflutningsfyrirtækisins. Dæmigert er að munurinn felist aðeins í einum punkti eða einn bókstafur sé frábrugðinn því sem við á um hið rétta póstfang útflutningsfyrirtækisins. Þeir opna einnig bankareikning á tilbúnu nafni og nýta iðulega falsað vegabréf í þeim tilgangi. Glæpamennirnir senda síðan innflutningsfyrirtækinu tölvupóst þar sem þeir kveðast vera fulltrúar útflutningsfyrirtækisins. Iðulega eru slík tölvubréf undirrituð í nafni aðila sem starfar í raun hjá útflutningsfyrirtækinu og starfsfólk innflutningsfyrirtækisins þekkir eða kannast við. Í þessu tölvubréfi upplýsa glæpamennirnir innflutningsfyrirtækið um að útflutningsfyrirtækið hafi tekið upp viðskipti við nýjan banka og að í framtíðinni beri að senda greiðslur inn á tiltekinn reikning í tilteknum banka. Verði innflutningsfyrirtækið við þessari beiðni án athugasemda fara greiðslurnar inn á reikninga í bönkum í Kína eða Hong Kong. Þar staldra þær stutt við því glæpamennirnir senda fjármunina strax til annarra landa. Dæmigert er að innflutningsfyrirtækið tapi með þessu móti 3.000 – 100.000 evrum eða 510.000 til 17 milljónum króna (miðað er við gengi evru 15.01.2013). Mikilvægt er því að fyrirtæki sem eiga í viðskiptum við aðila í Kína sannreyni að ekki séu glæpamenn á ferð fái þau upplýsingar um að viðkomandi hafi skipt um bankastofnun og beiðni um að senda framvegis greiðslur þangað. Þær upplýsingar þarf að sjálfsögðu að sannreyna á annan hátt en þann að senda tölvubréf. Ástæða er til að ætla að brot þessi séu tíðari en fram kemur í norrænum lögregluskýrslum. Í flestum tilvikum verða lítil og meðalstór einkafyrirtæki í innflutningi/útflutningi fyrir þessum lögbrotum. Oft er um að ræða fyrirtæki sem árum saman hafa staðið í viðskiptum við aðila í Kína. Um er að ræða fyrirtæki í hverskyns viðskiptum við aðila í Kína t.a.m. hvað varðar innflutning á fatnaði, tækjum, lækningatækjum, sólarrafhlöðum, rafmagnstækjum og fylgihlutum. Talið er að einkum séu að verki einstaklingar og glæpahópar sem rætur eiga að rekja til Nígeríu, Vestur-Afríku, Mið-Austurlanda og Suður- og Austur-Evrópu.
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira