Kári: Mætum með allar vélar fullar af bensíni gegn Katar Sigurður Elvar Þórólfsson í Sevilla skrifar 18. janúar 2013 12:00
Kári Kristján Kristjánsson, línumaður íslenska landsliðsins í handbolta, fullyrðir að íslenska liðið verði með allar vélar fullar af bensíni þegar liðið mætir Katar í dag í lokaumferð B-riðilsins á heimsmeistaramótinu á Spáni. Kári er ánægður með stuðningsmenn Íslands á mótinu og það er óvíst hvort skeggið fái að lifa út keppnina hjá Eyjamanninum. „Ég held að Katar sé þannig mótherji að þeir kæmu með eitthvað sem við höfum aldrei séð. Við eru með fullt af efni frá þeim og það getur vel verið að þeir haldi bara áfram að gera það sem þeir eru vanir að gera. Ég held að við höfum farið það vel yfir þá að þeir ættu ekki að koma okkur eitthvað sérstaklega á óvart. Breiddin er ekki mikil hjá þeim en við þurfum að sjálfsögðu að vera með vélarnar hjá okkur fullar af bensíni í leikinn." Kári lék vel í sókninni gegn Dönum þar sem hann skoraði alls 8 mörk samkvæmt tölfræði mótshaldara og sjálftraustið er að aukast hjá Eyjamanninum. „Þetta er eitthvað sem ég get byggt á fyrir framhaldið og ég finn að ég er a fá traust. Ég var ekki góður gegn Makedóníu og klúðraði tveimur skotum sem ég átti að klára." Kári er ánægður með hóp leikmanna ÍBV sem er í æfingaferð í Sevilla og mætir á alla leiki Íslands og hvetur liðið til dáða. „Ég hef sagt það áður að þegar fleiri en fimm Eyjamenn koma saman þá erum við komnir með itla Þjóðhátíð. Þeir kunna að hvetja okkur og skemmta sér. Það er mikill munur fyrir okkur að vera með lifandi fólk á pöllunum og virkilega gaman að fylgjast með þeim. Kári skartar myndarlegu skeggi á heimsmeistaramótinu líkt og Róbert Gunnarsson og Snorri Steinn Guðjónsson. Vignir Svavarsson yfirgaf skeggjaða liðið fyrr í vikunni en Kári segir enga keppni vera í gangi hvað varðar skeggið. „Ef ég tala fyrir mig þá nenni ég stundum að vera með skegg og stundum ekki. Núna nenni ég að vera með það," sagði Kári Kristján Kristjánsson en viðtalið má skoða í heild sinni með því að smella á örina hér fyrir ofan.
Mest lesið Náðu í börn látins liðsfélaga svo þau gætu verið með á gullmyndinni Sport Extraleikarnir: Tommi stóð í algjörum stríðsmanni en Nabblinn sá ekki neitt Körfubolti Gat engu svarað og hótaði að reka aðstoðarfólk sitt Sport Sögðust vera keppendur frá landi sem er ekki til Sport Finnland skrópar á opnunarhátíð Ólympíumóts fatlaðra Sport Höfnuðu boði Trumps eftir grín hans í karlaklefanum Sport Sjáðu Sesko stinga alla af og tryggja Man. Utd þrjú stig Enski boltinn Sex milljóna sekt fyrir að mæta seint Fótbolti Leikurinn í Mexíkó fer fram Fótbolti „Ef þú tækir burt vélbyssurnar væri þetta ósköp venjulegt“ Fótbolti Fleiri fréttir Stiven fagnaði Íslendingaslag en átta mörk Óðins dugðu ekki Kisurnar hermdu eftir kanínunni fyrir bikarvikuna „Auðmjúkur, þakklátur og stoltur“ Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM KA hafði betur gegn ÍBV í spennutrylli á Akureyri Auðvelt hjá Magdeburg og Íslendingar áberandi Benedikt ekki brotinn en frá næstu vikurnar „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Þorsteinn Leó með fjögur í fjórða sigri Porto í röð Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Þórsarar upp úr fallsæti Valskonur völtuðu yfir Stjörnuna Uppgjör: Fram - ÍR 26-34 | Öruggur og mikilvægur sigur ÍR Eyjakonur höfðu betur í Suðurlandsslagnum Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Snorri beið spenntur eftir ræðu Dags og er sammála honum Viktor Gísli með 48 prósent markvörslu í stórsigri Valsmenn með þriggja stiga forskot á toppnum eftir stórsigur Framarar safna áfram sigrunum eftir Evrópuflakkið Óli P. Ólsen er látinn Burðarás snýr aftur norður en bíður fyrst eftir barni Grínaðist í Antoni: „Við erum báðir rauðhærðir“ „Ekki endilega eitthvað sem ég þarf að upplifa aftur“ Uppgjör: Haukar - FH 25-32| Haukar létu valta yfir sig á heimavelli Mosfellingar enduðu taphrinuna og Haukakonur unnu fyrir norðan Sigurganga stráka Guðjóns Vals heldur áfram en tap hjá Bjarka Díana í lokaprófi og missir af mikilvægum landsleik Ómar Ingi markahæstur þegar Magdeburg tryggði sig inn í átta liða úrslit Elín Klara lék best allra á vellinum Viktor Gísli fagnaði sigri og sæti í átta liða úrslitunum Sjá meira