Sjálfstæðisflokkurinn fengi 41 prósent yrði kosið í dag Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 18. janúar 2013 18:24
Sjálfstæðisflokkurinn fengi fjörutíu og eitt prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga í dag. Þetta kemur fram í nýrri könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins. Samkvæmt henni er Björt framtíð orðinn þriðji stærsti flokkur landsins, og eina nýja framboðið sem fær meira en fimm prósenta fylgi. Samkvæmt könnuninni, sem framkvæmd var af 365 fyrir Stöð 2 og Fréttablaðið, fengi Sjálfstæðisflokkurinn fjörutíu og eitt prósent atkvæða ef gengið yrði til kosninga nú og hefur hann nokkra yfirburðastöðu. Samfylkingin fengi nítján prósent atkvæða en nýliðarnir í Bjartri framtíð eru samkvæmt þessu þriðji stærsti flokkur landsins með þrettán prósenta fylgi. Þar á eftir kemur Framsóknarflokkurinn með tólf prósent. Hjá Vinstri grænum er á brattann að sækja, flokkurinn mælist nú með sjö prósenta fylgi en fékk tæp 22 prósent í síðustu kosningum. Spurt var hvaða listi yrði fyrir valinu ef gengið yrði til þingkosninga í dag. Þeir sem voru óákveðnir voru þá spurðir hvaða flokk þeir myndu líklegast kjósa. Þeir sem enn voru óákveðnir voru þá spurðir hvort líklegra væri að þeir myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk. Björt framtíð er eina nýja framboðið sem nær marktækum árangri en hinir nýju flokkarnir eru að mælast með fylgi á bilinu 0 til tvö prósent. Ef litið er til þess hvers kyns svarendur eru kemur í ljós að Björt framtíð nýtur mun meiri stuðnings á meðal karla en kvenna. Átján prósent karla ætla að kjósa Bjarta framtíð en aðeins átta prósent kvenna. Framsóknarmenn eru heldur sterkari hjá karlpeningnnum en hjá Sjálfstæðisflokki skiptir kyn ekki máli. Samfylkingin er hinsvegar sterkari á meðal kvenna og sama er að segja um VG. Hringt var í 1.342 manns þar til náðist í 803 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki miðvikudaginn 16. janúar og fimmtudaginn 17. janúar. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarshlutfall var 59,8%. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni, og hlutfallslega eftir búsetu og aldri.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Sjá meira