Ráðstafa þarf skotvopnum í dánarbúum 18. janúar 2013 19:34 Skotvopn Nordicphotos/Getty
Samkvæmt landsskrá skotvopna liggja fyrir upplýsingar um að á höfuðborgarsvæðinu sé talsvert af skotvopnum sem eftir eigi að ráðstafa og séu enn skráð á nöfn látinna skotvopnaleyfishafa. Þetta kemur fram á vef lögreglunnar. „Því hefur verið beint til sýslumanna að vekja athygli erfingja á þeim lögum sem um þetta gilda og jafnframt hafa verið send út bréf til margra sem málið varða. Sumir hafa brugðist vel við og gert viðeigandi ráðstafanir en aðrir ekki. Því er hér með skorað á þá sem eiga eftir að ganga frá þessum málum að gera það sem fyrst," eins og segir orðrétt á vef lögreglunnar. Þar er vísað í 16. gr vopnalaga nr. 16/1998 þar sem segir: „Skotvopni, sem er hluti dánarbús, skal innan tólf mánaða frá andláti leyfishafa ráðstafað til aðila sem hefur leyfi til að eiga slíkt skotvopn. Þegar um er að ræða skotvopn sem hefur ótvírætt minja- eða tilfinningagildi er heimilt að víkja frá þessu skilyrði, enda verði skotvopnið gert óvirkt." Ef skotvopnum er ekki ráðstafað til skotvopnaleyfishafa, sem gjöf eða eftir sölumeðferð, skal skila þeim til lögreglu. Enginn má þó eigna sér eða afhenda skotvopn til eignar nema viðkomandi hafi sótt um heimild hjá lögreglu til að eignast það og sá fengið „kaupheimild." Ef erfingi sem ekki hefur skotvopnaleyfi vill halda skotvopni skal það gert varanlega óvirkt af viðurkenndum byssusmið og það tilkynnt lögreglu.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu Sjá meira