Innlent

Spændi upp sleðabrekku

Utanvegaakstur. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Utanvegaakstur. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Lögreglunni á Suðurnesjum var tilkynnt um að bifreið sæti föst í sleðabrekku í þéttbýli í umdæminu.

Þegar lögreglumenn mættu á vettvang sat bíllinn pikkfastur í brekkunni og voru fjögur ungmenni á stjákli í kringum hann.

Djúp hjólför voru í jarðveginum eftir aksturinn og búið að spæna upp grassvörðinn við að reyna að losa bílinn.

Tæplega tvítugur piltur játaði að hafa ekið og gaf hann skýringar á athæfinu, sem lögregla taldi ekki trúverðugar. Pilturinn á yfir höfði sér kæru fyrir akstur utan vega og broti á lögum um náttúruvernd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×