Sjá ekkert athugavert við að kirkjan aðstoði við tækjakaup Karen Kjartansdóttir skrifar 4. janúar 2013 20:28
Almenningur hefur staðið straum af allt að helmingi af því fé sem gert hefur verið ráð fyrir til tækjakaupa á Landspítalanum undanfarinn þrjú ár. Hvorki forstjóri Landspítalans né velferðarráðherra sjá neitt athugavert við að kirkjan vilji aðstoða við tækjakaupin eins og biskup hefur lagt til. Agnes M. Sigurðardóttir biskup varpaði fram þeirri hugmynd í nýárspredikun sinni að þjóðkirkjan hefði forystu um söfnun fyrir betri tækjakosti Landspítalans. Sagði hún að oft hefði samtakamáttur þjóðarinnar skilað miklum árangri í þessum efnum. Björn Zoega, forstjóri Landspítalann, sagði í samtali við fréttamann í dag að hann sæi ekkert athugavert við þessar hugmyndir. Fjöldi sjúkrastofnanna hefði orðið til fyrir tilstuðlan einstaklinga og félagasamtaka. Má þá nefna að Gamla Landspítalann, Vífilstaði, Barnaspítala Hringsins og líknardeildina í Kópavogi. Eftir hrun hafa tækjakaup á spítalanum orðið erfiðari ekki síst vegna gengishruns krónunnar. Á mynd í myndskeiðinu hér að ofan má sjá það fé sem stjórnvöld hafa varið beint til tækjakaupa á landspítalanum undanfarinn ár, táknaðar með gráum lit. Hlutdeild almennings og góðgerðarsamtaka við fjármögnunin tækja er táknum með grænu súlunum. Þarna sést að almenningur staðið straum að allt að helmingi kaupanna á móti ríkinu undanfarin þrjú ár. Það skal þó tekið skýrt fram að mun meira fé hefur verið varið til tækjakaupa í gegnum tíðina en það fé hefur þá verið tekið af því sem ætlað er til reksturs spítalans því spítalinn hefur neyðst til þess að bregðast við stöðunni. Og þar fyrir utan skal það tekið fram að á fjárlögum ársins 2013 eru áætlaðar 860 milljónir króna til tækjakaupa á Landspítala. En það er líklega mesta framlag ríkisins hingað til. Þingmaðurinn Sigríður Ingibjörg Ingadóttir sem einnig er formaður velferðarnefndar, gagnrýndi fyrirhugaða söfnun kirkjunnar fyrir tækjakaupum harðlega í fréttum Ríkisútvarpsins í gær. Velferðarráðherra er henni þó ekki sammála. „Ég hef lagt áherslu á það að almannaheillasamtök hafa alltaf hjálpað bæði heilbrigðisstofnunum og ýmsum öðrum þjónustustofnunum þegar á þarf að halda. Þannig að ég fagna því að kirkjan komi til liðsinnis við okkur," segir Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra.
Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira