Síminn hjá Stígamótum hefur verið rauðglóandi Erla Hlynsdóttir skrifar 8. janúar 2013 18:15
Síminn hefur varla stoppað hjá Stígamótum í dag, í kjölfar umfjöllunar Kastljóss um barnaníðinginn Karl Vigni Þorsteinsson. Sóknarprestur Áskirkjuprestakalls segir að viðurkenning sem veitt var Karli Vigni hafi orkað tvímælis á sínum tíma. Á upptökum úr falinni myndavél sem sýndar voru í Kastljósi í gær játaði Karl Vignir að hafa brotið kynferðislega gegn allt að fimmtíu börnum. Lögreglan ræddi við Karl Vigni í dag og boðaði hann til yfirheyrslu. Við stígamót, í næsta húsi, hefur fjöldi manns haft samband í dag, og viljað segja sína sögu. „Það gerðist sem gerist gjarnan við slíkar fjölmiðlauppákomur að síminn hefur verið logandi hér í dag," segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. „Bæði hefur fólk hringt hingað vegna ofbeldis sem það segir þennan mann hafa beitt og spyr hvernig það getur leitað sér hjálpar. Svo er annað fólk sem hefur verið beitt ofbeldi af öðrum og fundist það ekki hafa fengið hljómgrunn þegar það reyndi að leita sér hjálpar vegna þeirra mála." Hún segist ekki hafa heildaryfirsýn yfir hvort þarna sé um að ræða mál tengd Karli Vigni sem séu ekki fyrnd. „Eitt þeirra er fyrnt, gróf nauðgun," segir Guðrún. Í Kastljósi var einnig vakin athygli á viðurkenningu sem Áskirkja veitti Karli Vigni fyrir tveimur árum. Í yfirlýsingu sem forsvarsmenn Áskirkju sendu frá sér í dag kemur fram að Karl Vignir kom aldrei að starfað með börnum og unglingum í Áskirkju. „Í kjölfar umfjöllunar í fjölmiðlum árið 2007 um Karl Vigni, var hann leystur frá störfum sem sjálfboðaliði," segir í yfirlýsingu frá Áskirkju. „Það var síðan árið 2011 sem hann fékk viðurkenningu frá kirkjunni fyrir vel unnin störf." „Í ljósi þess sem fram hefur komið í umfjöllun Kastljóss nú, og Karl Vignir játaði þar á sig, er augljóst að sú ákvörðun var röng," segir ennfremur í yfirlýsingunni. Það var í mars 2007 sem Karl Vignir játaði hjá lögreglu að hafa misnotað þrjá drengi. DV greindi frá þessu skömmu síðar. Fjöldi greina birtust um játningar Karls Vignis um kynferðisbrot gegn börnum, og ennfremur um að þau væri fyrnd. Það lá því skýrt fyrir að þegar Áskirkja veitti honum viðurkenningu að hann hafði játað kynferðisbrot, enda hafði honum áður verið vikið frá störfum vegna þessa. Sóknarprestur Ásprestakalls, séra Sigurður Jónsson, sem ber ábyrgð á viðurkenningunni, segir í samtali við fréttastofu að viðurkenningin hafi orkað tvímælis á sínum tíma. Hann hafi litið á hana sem kærleiksvott og viðleitni til að leggja brotinni manneskju lið á leið sinni til betri vegar.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira