Lottó vinningshafi ætlar að bjarga heimili foreldra sinna Samúel Karl Ólason skrifar 17. desember 2013 16:06
Það var pollrólegur fjölskyldumaður á fertugsaldri sem mætti til Íslenskrar getspár í morgun en hann er annar hinna heppnu vinningshafa sem vann tæpar 70 milljónir í Lottóinu á laugardaginn. „Hann spilar oft með í Lottó og Lengjunni og verslar miðana sína á lotto.is . Á föstudaginn fór hann inn á lotto.is líkt og oft áður og átti rúmlega 500 krónur inná spilareikningnum sínum. Hann valdi þrjár raðir í Lottó og veitti því athygli að hann hefði efni á að kaupa eina röð í viðbót sem hann gerði. Á þessum tímapunkti velti hann því fyrir sér að hætta við kaupin og bæta við upphæð inná reikninginn til að geta keypt 10 raða seðil í þessum risapotti,“ segir í tilkynningu frá Íslenskri getspá. Þá mundi maðurinn eftir því að hann hafi einu sinni látið ógilda Lengjumiða og breytt einum leik. „Ef hann hefði ekki breytt þeim leik á Lengjumiðanum hefði hann unnið á miðann, því ákvað hann að kaupa þessar 4 raðir og það var nóg því það var einmitt fjórða röðin sem var með allar 5 tölurnar réttar.“ Vinningsmiðinn kostaði því einungis 520 krónur. „þessi staðreynd minnir okkur enn og aftur á að það þarf ekki að spila fyrir háar fjárhæðir til að vinna stórt.“ „Vinningshafinn var ekki í neinum vafa um hvað hann ætlaði að gera við vinninginn, foreldrar hans eru við það að missa heimili sitt og hans fyrsta verk er að bjarga þeim. Við óskum vinningshafanum og fjölskyldu hans innilega til hamingju með þennan glæsilega vinning.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Sjá meira