Sendiherrar stórvelda heimsækja Gaua litla Garðar Örn Úlfarsson skrifar 5. júlí 2013 08:45 Hernámssetrið í Hvalfirði er rekið af Guðjóni "Gaua litla“ Sigmundssyni. Mynd/Hernámssetrið
Rússar þakka Íslendingum liðveislu í heimsstyrjöldinni síðari og færa Hernámssetrinu í Hvalfirði muni tengda stríðinu. Sendiherrar ríkja bandamanna, eftirlifandi rússneskur hermaður ásamt rússneskri sjónvarpsstjörnu verða við athöfnina. „Rússar leggja mikla áherslu á að þakka þann mikla stuðning sem Íslendingar sýndu þeim í seinni heimstyrjöldinni,“ segir Guðjón Sigmundsson, staðarhaldari í Hernámssetrinu í Hvalfirði sem fær að gjöf ýmsa gripi frá Rússum. Guðjón, best þekktur sem Gaui litli, segir safn í Moskvu senda hernámssetrinu þrjá búninga, af Bandaríkjamanni, Breta og Rússa, ásamt eftirlíkingum af hríðskotabyssum þessara þjóða.Í Hernámsetrinu að Hlöðum verður þess minnst í dag að skipalest Rússa úr Hvalfirði varð fyrir miklum skakkaföllum út af Vestfjörðum 5. júlí 1942.Mynd/HernámssetriðSendiherra Rússlands á Íslandi mun afhenda gripina við formlega athöfn í dag. Einn eftirlifandi hermaður Rússa verður í sendinefnd þeirra. Guðjón segir að þangað hafi einnig boðað komu sína fulltrúar ýmissa ríkja bandamanna úr heimsstyrjöldinni; sendiherrar Breta, Bandaríkjanna, Frakklands og Noregs. Föstudagurinn er valinn til minningar um skipalestina PQ 17 sem í júlí 1942 lagði upp frá Hvalfirði á leið í Norður-Íshaf og til Arkangelsk í Rússlandi. Mikill hörmungaratburður varð 5. júlí þegar Þjóðverjar sökktu tólf skipanna. Aðeins ellefu skip af 34 náðu í höfn.Margra grasa kennir í Hernámssetrinu að Hlöðum og nýir gripir bætast við í dag.Mynd/HernámssetriðGuðjón kveður Rússa ekki hvað síst vilja þakka Íslendingum að hafa stutt mikilvægar siglingar þeirra úr Hvalfirði og lagt þannig sitt af mörkum til að ráða niðurlögum nasismans. Meðal þeirra sem verða viðstaddir afhendinguna er Mikhail S. Gusman, varaformaður rússnesku fréttastofunnar ITAR-TASS, ásamt fimm manna tökuliði. „Hann er einn frægasti sjónvarpsmaður Rússa,“ segir Guðjón um Gusman.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira