Íhugar að fella úr gildi stækkun friðunarsvæðis fyrir hrefnuveiðar Gissur Sigurðsson skrifar 5. júlí 2013 13:05 Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að fara nákvæmlega eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um kvóta á næsta fiskveiðiári, sem hefst fyrsta september og í athugun er að setja kvóta á úthafsrækju.
Sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að fara nákvæmlega eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar um kvóta á næsta fiskveiðiári, sem hefst fyrsta september og í athugun er að setja kvóta á úthafsrækju. Þar með verður þorskkvótinn 215 þúsund tonn, ýsukvótinn 38 þúsund, ufsinn 57 og karfi lliðlega 60 þúsund svo dæmi séu tekin. Leyfilegur heildarafli eykst í þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, þykkvalúru, sólkola, síld og löngu, og má áætla að útflutningsverðmæti aukningarinnar nemi um 15 milljörðum króna. Heildaraflinn í öðrum tegundum helst óbreyttur á milli ára eða lækkar óverulega. Ýmsir hagsmunahópar, eins og til dæmis smábátasjómenn, vildu sjá meiri þorskkvóta og hafa látið reikna út fyrir sig að núverandi úthlutun sé innan við svonefnda 20 prósenta aflareglu og fleiri hópar telja óhætt að auka ýsukvótann, en það eru svosem ekki ný viðbrögð við kvótaúthlutun hverju sinni. Þá mun sjávarútvegsráðuneytið vera að undirbúa að setja kvóta á úthafsrækju, en þær hafa að matil ráðuneytisins farið úr böndunum við núverandi fyrirkomulag, sem eru frjálsar veiðar. Þá hefur fréttastofan heimildlir fyrir því að sjávarútvegsráðherra íhugi að fella úr gildi stækkun friðunarsvæðis fyrir hrefnuveiðar í Faxaflóa, sem fyrirrennari hans ákvað rétt áður en hann lét af ráðherrastóli.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira