Morsi-sinnar boða mótmæli Guðsteinn Bjarnason skrifar 5. júlí 2013 12:28 Stuðningsmenn Morsis með mynd af honum. Á enni hans hefur verið skrifað: "Al Sisi svikari". Mynd/AP
Bræðralag múslima hvetur stuðningsfólk Múhameds Morsis til að efna til mótmæla í dag mótmæla gegn aðgerðum hersins, sem steyptu Morsi af stóli á miðvikudag. Margir helstu leiðtogar Bræðralagsins hafa verið handteknir og Morsi sjálfur situr í stofufangelsi. Á annan tug helstu samstarfsmanna hans eru sömuleiðis sagðir vera í stofufangelsi, en ekki er vitað hvar þeir eru niðurkomnir. Herinn segist hafa farið að vilja fólksins þegar Morsi var sviptur völdum. Um síðustu helgi, þegar ár var liðið frá því Morsi tók við forsetaembættinu, flykktust menn milljónum saman út á götur til að krefjast afsagnar hans. Bræðralagið sakar herforingjana hins vegar um valdarán og boðar „dag höfnunar”. Á föstudögum koma múslimar saman til bæna í moskum landsins þar sem landsmálin eru iðulega rædd, og halda gjarnan að því loknu út á göturnar til að koma skoðunum sínum á framfæri. „Við neitum að taka þátt í neinum verkum valdaránsstjórnarinnar,” segir í yfirlýsingu frá Bræðralaginu, sem hvetur þó fólk til að mótmæla aðeins með friðsamlegum hætti. Bræðralagið fordæmir jafnframt að bæði sjónvarpsstöð samtakanna og dagblaðs, sem þau gefa út, hafi verið lokað ásamt þremur öðrum sjónvarpsstöðvum, sem staðið hafa við bakið á Morsi.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Fleiri fréttir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sjá meira