Ólöglega búið í húsum í Hafnarfirði Hrund Þórsdóttir skrifar 5. júlí 2013 18:46
Við stjórn byggingaframkvæmda ber byggingastjóri ábyrgð á að lögum og reglugerðum sé fylgt. Hann boðar byggingarfulltrúa til áfangaúttekta og þegar húsi hefur verið lokað fyrir veðri og vindum fer fram fokheldisúttekt. Óheimilt er að flytja inn í hús nema fram hafi farið öryggisúttekt og þremur árum síðar skal mannvirkið fullgert og farið í lokaúttekt. Svona eiga hlutirnir að vera en í raunveruleikanum eru þeir oft öðruvísi. Í þenslunni gerðust hlutir hratt og árið 2006 var til dæmis úthlutað lóðum undir 950 hús og íbúðir í Hafnarfirði og erfitt var að fylgjast með öllu. Bjarki Jóhannesson, skipulags- og byggingarfulltrúi Hafnarfjarðar, hefur lengi átt í útistöðum við byggingarstjóra vegna vanefnda. Sumir klára ekki verk sín og fara ekki í lögboðnar úttektir. „Nú oft er flutt inn í húsin án þess að þessar úttektir hafi farið fram, sem er ekki löglegt samkvæmt mannvirkjalögum eða eldri byggingalögum. Það er þetta sem við erum að berjast við, að fá byggingarstjórana til að klára og það gengur upp og ofan,“ segir Bjarki. Á annað hundrað mál eru í gangi vegna þessa. Þar af eru 30 í dagsektaferli og erindi um áminningu á 5 byggingarstjóra hafa verið send Mannvirkjastofnun. Mikilvægt er að ljúka málunum vegna öryggismála og neytendaverndar sem tryggir gæði húsanna. Þá er um tekjulind fyrir sveitarfélög að ræða þar sem fokheldisskráningar og lokaúttektir hækka fasteignagjöld. Bjarki hvetur byggingarstjóra og eigendur húsa til að sinna lögboðnum skyldum sínum. „Það virðist bíta best á þá ef maður birtir nöfnin þeirra, ég geri það nú orðið í fundargerðum. Þeim er illa við að fá nafnið sitt á prent og það dugar oft best.“ Mörg húsanna eru í iðnaðarhverfum og starfsemi í þeim í raun ólögleg. „Neyðarúrræði væri náttúrulega að láta loka húsunum en það er hlutur sem við viljum helst ekki fara út í.“
Mest lesið Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Innlent Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Innlent Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Innlent Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Innlent Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Fleiri fréttir Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Aðalmeðferð að ljúka í Edition málinu og sextán ára fangelsis krafist Hótanir nægi ekki til að bregðast við utan landhelgi Fara fram á sextán ár yfir Ming: „Ásetningur hennar var kaldur og grimmur“ Dræm laxveiði: „Menn spá ekki nema spáin sé góð“ Tvö hundruð prósent fleiri tilkynningar um vændi „Ætlum að sækja að olíufélaginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar Sjá meira