Svört skýrsla um stjórnun Eirar Hrund Þórsdóttir skrifar 5. júlí 2013 18:29 Skýrsla Deloitte er áfellisdómur yfir stjórn Eirar.
Á fundi stjórnar Eirar í byrjun árs var samþykkt að leita til óháðra sérfræðinga og rannsaka aðdraganda þeirra erfiðleika sem steðja að rekstri og fjárhag Eirar. Nú er komin út skýrsla Deloitte og þar kemur meðal annars fram að fyrrverandi forstjóri Eirar auk fjármálastjóra og fleiri aðila, hafi nýtt fé heimilisins í flugferðir, gistingu og veitingar erlendis og nemur upphæðin alls 2,7 milljónum króna. Ekki hefur verið sýnt fram á að greiðslurnar tengist með beinum hætti rekstri Eirar og telur Deloitte ástæðu til að kanna bókhald Eirar frekar og meta hvort stjórnendur kunni að hafa farið á svig við lög. Einn og sami aðilinn hefur hingað til gegnt stöðu formanns fulltrúaráðs og formanns stjórnar Eirar og hefur hann í raun verið í þeirri stöðu að hafa eftirlit með sjálfum sér. Þetta er gagnrýnt í skýrslunni og þegar leitað var viðbragða hjá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, sem sinnti þessum embættum, sagði hann að enginn hefði gert athugasemdir við fyrirkomulagið fram að þessu. Hann samsinnti því þó að þetta væri óæskilegt og breyta þyrfti skipulaginu. Hann sagði helstu skýringa á stöðu Eirar að leita í efnahagshruninu. Benda má á að umfang rannsóknar Deloitte var aðeins 50 klukkustunda vinna, en Ríkisendurskoðun hafnaði á sínum tíma beiðni um allsherjarúttekt á þeim grundvelli að ekki væru lagaheimildir fyrir henni. Stefán Benediktsson sat í stjórn Eirar á þessum tíma og hann segir nýju skýrsluna varla geta talist óháða úttekt. Hún sé gerð í verktöku fyrir núverandi stjórn og telur hann enn þörf á allsherjarúttekt. Staða Eirar er afar slæm og sést það vel á því að ekki var hægt að verja meiri fjármunum í rannsókn Deloitte, en sem nemur 50 klukkustunda vinnu. Mörgum spurningum er því enn ósvarað.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Sjá meira