Segir leigusala hafa sett upp myndavél til þess að vakta uppvaskið 7. janúar 2013 10:46 Eftirlitsmyndavél. Myndin er úr safni. „
Ég myndi ekki búa svona og ég get ekki ætlast til þess að dóttir mín geri það," segir Halldóra Eyfjörð Skjaldardóttir, sem ætlar að kæra leigusala dóttur sinnar fyrir brot á persónuverndarlögum en sá hefur sett upp tvær eftirlitsmyndavélar á sameign leiguhúsnæðis. Dóttir Halldóru, Ástrós Lind Eyfjörð, uppgötvaði að búið væri að setja upp myndavélarnar á gamlársdag. Móðir hennar heldur því meðal annars fram að myndavélin taki upp allar mannaferðir á ganginum, þar á meðal hverjir koma og fara úr herbergi dóttur hennar. Þá er einnig myndavél inni í eldhúsinu, en Halldóra segir að tilgangurinn sé sá að vakta uppvaskið, sem leigusalanum hefur fundist vandamál, og er meðal annars ástæðan fyrir því að myndavélarnar voru settar upp að sögn Halldóru. „Þetta hefur ekkert með öryggi að gera," bætir Halldóra við og bendir máli sínu til stuðnings á það að engin eftirlitsmyndavél við inngang hússins. Halldóra segir dóttur sína ósátt við vöktunina, og hefur flutt út. Hún vilji aftur á móti fá til baka 50 þúsund króna tryggingu sem leigusalinn, Einar B. Ísleifsson, neitar að endurgreiða, að sögn Halldóru. Í viðtali við DV, sem vakti fyrst athygli á málinu, segir Einar að hann hafi sett myndavélarnar upp vegna slæmrar umgengni á sameigninni. Hann bætti svo við að myndavélarnar hafi einnig verið settar upp til þess að koma í veg fyrir þjófnað. Í lögum um rafræna vöktun kemur fram að það verði að fræða viðkomandi um rafræna vöktun sem á sér stað í húsnæði þeirra. Halldóra fullyrðir að dóttir sín hafi aldrei verið tilkynnt um myndavélarnar. Þá féll úrskurður hjá Persónuvernd árið 2006, þar sem nemar kvörtuðu vegna rafrænnar vöktunar á gangi á heimavist framhaldsskóla. Þess ber þó að geta málin eru ekki endilega sambærileg, þó málin séu keimlík. Persónuvernd hefur ekki fengið málið inn á sitt borð, en Halldóra segist ætla að kvarta undan eftirlitinu hið fyrsta.
Mest lesið Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira