Guðbjartur búinn að hafa samband við bræðurna Boði Logason skrifar 7. janúar 2013 11:33 Samúel og Guðmundur Skúli greindust nýlega með erfðasjúkdóminn Fabry, sem móðir þeirra lést úr í lok desember. „
Við höfum fengið gríðarleg viðbrögð á netinu og einnig hafa margir hringt í mig," segir Guðmundur Skúli Halldórsson, sem er einn af fáum hér á landi sem greinst hefur með Fabry erfðasjúkdóminn. Nýlega greindist sjúkdómurinn í öðrum fimm fjölskyldumeðlimum Guðmundar Skúla, en móðir hans lést úr sjúkdómnum í lok desember. Sjúkdómurinn leiðir til skorts á ensími og getur með tímanum skemmt líffæri eins og nýru, hjarta og heilaæðakerfi. Guðmundur Skúli og Samúel bróðir hans sögðu sögu sína á Stöð 2 í gær. Þeir þurfa lyf sem kemur í veg fyrir að sjúkdómurinn skemmi meira, en þau kosta tugi milljóna á ári hverju. „Aðstoðarmaður Guðbjarts [Hannessonar, velferðarráðherra, innsk.blm] hringdi í okkur í gær og Guðbjartur sjálfur sendi okkur svo skilaboð. Við fengum þau skilaboð að okkar mál yrðu skoðuð, og það yrðið skoðað hvar þetta stoppaði í kerfinu," segir Guðmundur Skúli í samtali við fréttastofu í morgun. „Ég veit að málið er komið inn á borð þriggja ráðherra, jafnvel þó þeir hafi ekkert með það að gera," segir hann. „Við erum búnir að bíða í sex vikur og það er ekkert farið að gerast. Ég sé ekki að við ráðum við það að bíða í nokkur ár eins og gerðist á Akureyri," segir hann, og vísar til mála þriggja annarra sem greinst hafa með sjúkdóminn og þurftu að bíða í þrjú ár áður en hreyfing komst á mál þeirra. „Aðstoðarmaður Guðbjarts ætlaði að hafa samband við okkur aftur í dag og upplýsa okkur um hvar málið er statt. Það kemur vonandi eitthvað út úr því," segir hann.
Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Fleiri fréttir Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Sjá meira