Enn beðið umsagna um nýja stjórnarskrá Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 23. janúar 2013 07:00 Fundað um stjórnarskrá
Ákveðið var að fresta því að afgreiða frumvarp um stjórnarskrá úr nefnd í gær. Tvær þingnefndir eiga eftir að skila af sér umsögn um málið. Nefndarformaður vill hefja þingumræðu sem fyrst, hægt sé að semja um breyttan ræðutíma ef með þarf. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis ákvað á fundi sínum í gær að fresta því að afgreiða frumvarp um nýja stjórnarskrá til annarrar umræðu. Stefnt var að því að gera það í gær og hefja umræðu á þingi um málið á morgun, en tvær nætur þurfa að líða frá framlagningu máls til umræðu. Sjálfstæðis- og framsóknarmenn höfðu gagnrýnt mjög fyrirætlun um að afgreiða málið úr nefnd, en þeir funduðu með fulltrúum Samfylkingarinnar um málið á mánudag. Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segist hafa rætt þetta við nefndarmenn á fundinum í gær þar sem enn vantaði álit nokkurra þingnefnda. „Fólk var samþykkt því að fresta því að afgreiða málið. Það er því ekki ákveðið hvenær það verður tekið úr nefndinni." Stjórnskipunarnefndin leitaði álits annarra þingnefnda um þá þætti í stjórnarskrá sem hefðu áhrif á þeirra verksvið. Enn eiga þingskaparnefnd og forsætisnefnd eftir að skila áliti sínu og óvíst hvenær það verður. „Ég skil ekki af hverju ekki er komið álit frá forsætisnefnd, en þingskaparnefnd fundar annað kvöld [í kvöld] og ég vona að þau klári málið þá, en veit það þó ekki fyrir víst," segir Valgerður. Illugi Gunnarsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, var gagnrýninn á málið eftir fundinn á mánudag. Hann segir að álit sumra nefndanna sé í formi ábendinga um hluti sem þurfi að skoða betur. „Í fjárlaganefnd var tekin ákvörðun um að kalla ekki inn sérfræðinga á verksviði nefndarinnar, en skrifa álit og vekja athygli á því sem þarf að skoða. Það væri þá stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að gera það, en það hefur ekki verið gert." Valgerður segist hins vegar ekki skilja það að ekki megi hefja aðra umræðu þó enn vanti nefndarálit. „Það er hægt að byrja og ræða málin og halda vinnunni áfram. Það má semja um lengd ræðutíma ef með þarf."
Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent Spurning með sálina Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira