Lögregla þarf rýmri heimildir til að fást við kynferðisbrot Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 15. janúar 2013 13:47 Frá fundi allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Mynd/ Anton Brink.
Flestir þeirra gesta sem mættu á fund allsherjar- og menntamálanefndar í morgun þar sem fjallað var um kynferðisbrot gegn börnum voru þeirrar skoðunnar að lögregla ætti að fá rýmri heimildir til þess að beita svokölluðum virkum tálbeitum á netinu, í því skyni að góma barnaníðinga. Á fundinn mættu fulltrúar frá innanríkisráðuneyti, Ríkissaksóknara, Barnaverndarstofu, Stígamótum og lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu auk Svölu Ísfeld Ólafsdóttur lögfræðingi og sérfræðingi í kynferðisbrotum gegn börnum. Stefáni Eiríkssyni lögreglustjóra var tíðrætt á fundinum um netið og þau tækifæri sem barnaníðingum gefast þar til þess að komast í samband við börn og mynda við þau trúnaðarsamband. Hann sagði lögreglu mjög virka í netheimum og nefndi til sögunnar Facebook síðu lögreglunnar sem hefði um þrjátíu þúsund lesendur. Í gegnum hana fái lögreglan mörghundruð skilaboð í hverjum mánuði þar sem greint er frá meintum brotum af ýmsu tagi. Stefán tók einnig fram að fjölmargt hefði verið gert til bóta í þessum málaflokki síðustu árin, sérstakri kynferðisbrotadeild hefði verið komið á laggirnar og gæsluvarðhaldi beitt í auknum mæli gegn meintum gerendum. Þá hafi lögreglumenn fengið sérstaka þjálfun í að fást við kynferðisbrotamál. Þá hafi umræða um kynferðisbrot gegn börnum aukist og orðið almenn í samfélaginu en Stefán benti á að það hafi meðal annars haft það í för með sér að gerendur í slíkum málum hafi fundið sér annan vettvang. Sá vettvangur sé netið og það kalli á önnur viðbrögð en lögregla hafi yfir að ráða í dag. Að mati Stefáns þarf því nauðsynlega að ræða hvort lögregla fái heimildir til þess að beita virkum tálbeitum, það er að segja, að hafa frumkvæðið að því að ná sambandi við kynferðisbrotamenn á Netinu í þeim tilgangi að taka þá úr umferð. Flest þeirra sem komu fyrir fundinn voru sammála Stefáni í þessu en Sigríður Friðjónsdóttir Ríkissaksóknari benti þó á að með því væri verið að fara inn á "hættulegt svæði" þar sem verið væri að ginna menn til þess að fremja brot sem þeir ella hefðu ekki framið. Því þurfi að skoða það ítarlega hvort úrræði af þessum toga standist lög og mannréttindasáttmála sem Íslendingar hafi gengist undir.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Erlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði Innlent Fleiri fréttir Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Sjá meira