Innlent

Baldur siglir ekki í dag

Ferð ferjunnar Baldurs fellur niður í dag vegna óveðurs samkvæmt upplýsingum frá Sæferðum. Til stóð að Baldur legði úr höfn klukkan þrjú í dag frá Stykkishólmi og svo klukkan sex frá Brjánslæk. Glórulaus bylur er nú á Stykkishólmi sem og víðar og ófært nær á öllu landinu. Gert er ráð fyrir að siglt verði á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×