Íslendingar gera sig gilda á Norðurslóðum Kristján Már Unnarsson skrifar 11. júní 2013 10:02 Í fremstu röð eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra Íslands, Dmitrij Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, og Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands. Fyrir aftan eru meðal annarra utanríkisráðherrar Danmerkur og Svíþjóðar og fulltrúi Sama. „
Ísland þarf að leggja áherslu á að vera í fararbroddi í norðurslóðasamstarfi, með tilliti til nýtingar auðlinda á svæðinu, umhverfisverndar og opnunar nýrra siglingaleiða um norðurhöf." Þetta var meðal þess sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi og bætti við að mikilvægt væri að hefja strax vinnu við að fá til Íslands verkefni tengd hinni hröðu þróun í þessum heimshluta. Með þessari stefnumörkun viðheldur ný ríkisstjórn þeim áherslum sem fyrrverandi ríkisstjórn lagði á samstarfið á norðurslóðum undir forystu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra sem sagði Norðurskautsráðið eina vettvanginn þar sem Íslendingum gæfist færi á að vinna náið með helstu stórveldum heims á jafningjagrundvelli. Sigmundur Davíð hefur þegar stigið sín fyrstu skref á þessum vettvangi þegar hann sótti leiðtogafund Barentsráðsins í Kirkenes í Norður-Noregi í síðustu viku. Aðildarríki Barentsráðsins eru Noregur, Rússland, Svíþjóð, Finnland, Danmörk og Ísland, auk þess sem Evrópusambandið á aðild að ráðinu. Sigmundur Davíð fundaði sérstaklega með Dmitry Medvedev, forsætisráðherra Rússlands og átti einnig tvíhliða fundi með Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, og Jyrki Katainen, forsætisráðherra Finnlands, sem og Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar. Í yfirlýsingu leiðtogafundar Barentsráðsins koma meðal annars fram áherslur sem varða norð-austur siglingaleiðina, endurnýjanlega orkugjafa og mikilvægi þróunar á svæðinu, bæði hvað varðar samgöngur, innviði og mannauð, að því er fram kemur í frétt frá forsætisráðuneytinu.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið.“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira