Óskiljanlegur úrskurður Persónuverndar segir Kári Garðar Örn Úlfarsson skrifar 11. júní 2013 11:39 "Ágiskanirnar byggja eingöngu á notkun ættfræði sem er heimil að íslenskum lögum," segir Kári Stefánssson.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir óskiljanlegt að Persónuvernd hafi hafnað beiðni fyrirtækisins og Landsspítalans um notkun persónuupplýsinga í tiltekið verkefni. Eins og fram kom á Vísi í gær telur Persónuvernd Íslenska erfðagreiningu hafa farið á svig við lög með því að áætlað arfgerð 280 þúsund einstaklinga. Kári undirstrikar að ekki sé um það að ræða að arfgerðir umræddra 280 þúsund einstaklinga hafi verið greindar. Arfgerð verði aðeins greind með því að vinna úr lífsýni úr viðkomandi. Slíkt hafi vísindamenn ÍE aldrei gert án þess að fyrir liggi upplýst samþykki. „Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa hins vegar getið sér til um arfgerðir mikils fjölda einstaklinga án þess að fyrir liggi upplýst samþykki enda eru ágiskanir um fólk ekki persónuupplýsingar. Ágiskanirnar byggja eingöngu á notkun ættfræði sem er heimil að íslenskum lögum,“ segir Kári. Þá segir forstjóri ÍE mikilvægt í þessu samhengi að ágiskanir fyrirtækisins hafi verið unnar með samþykki Persónuverndar. „Úrskurður hennar frá 28. maí er því viðsnúningur af hennar hálfu og með öllu óskiljanlegur,“ segir hann. Upplýsingar sem átti að miðla frá Landspítala til ÍE lúta að heilsuhögum allra þeirra sem leitað hafa til spítalans síðustu fimm ár. Persónuvernd segir að innan veggja ÍE virðist unnið með áætlaðar arfgerðir tengdar tilteknum einstaklingum án þess að þeir hafi samþykkt slíkt. Áætlaðar hafi verið arfgerðir 280 þúsund einstaklinga út frá 95 þúsund skyldmennum þeirra sem tóku þátt í rannsóknum erfðafyrirtækisins. „Er mælt fyrir um að ÍE skuli tryggja að öll slík vinnsla, þar á meðal varðveisla, grundvallist á samþykki. Skal ÍE leggja fyrir Persónuvernd eigi síðar en 1. nóvember næstkomandi gögn um með hvaða hætti fyrirtækið hafi farið að þeim fyrirmælum,“ segir Persónuvernd. ÍE, Landspítalinn og fleiri óskuðu eftir leyfi til vinnslu persónuupplýsinga til að undirbúa notkun raðgreiningarupplýsinga í einstaklingsmiðaðri heilbrigðisþjónustu Landspítalans. „Ljóst er að meirihluti þeirra einstaklinga sem fyrirhugað er að vinna með upplýsingar um í þágu umrædds verkefnis hefur ekki veitt samþykki af neinu tagi sem til álita getur komið sem lögmætisgrundvöllur, né heldur er fyrirhugað að afla samþykkis frá þeim einstaklingum,“ segir í umfjöllun Persónuverndar, sem synjaði sem sagt um leyfið.
Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Sjá meira