Vægir dómar í líkamsárásarmálum - sakborningar játuðu allir brot sín Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 18. janúar 2013 12:56 Úr Héraðsdómir Reykjaness.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag fimm menn fyrir árás sem átti sér stað á verkstæðinu Pit Stop í Hafnarfirði í september árið 2010. Þeir voru fundnir sekir um að hafa í sameiningu ráðist á mann sem þar var og slegið hann með kylfu í höfuð og líkama, með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á hvirfli. Sakborningarnir játuðu allir aðild sína að árásinni. Þá var einn fimmmenninganna, Jens Tryggvi Jensson, einnig fundinn sekur um sérstaklega hættulega líkamsárás á skemmtistaðnum Risinu við Tryggvagötu í Reykjavík. Árásin átti sér stað aðfaranótt laugardags, þann 5. mars árið 2011. Þar kastaði Jens Tryggvi bjórglasi í höfuð manns, ýtti honum upp að vegg og tók kverkataki. Maðurinn hlaut sár og skurði á andliti og hálsi sem sauma þurfti með 38 sporum. Þá hlaut hann einnig varanlega lömum á vinstra raddbandi. Frá árinu 2007 hefur Jens Tryggvi hlotið nokkra dóma, þar á meðal fyrir umferðar- og hegningarlagabrot. Jens Tryggvi játaði brot sín fyrir héraðsdómi og var það virt honum til málsbóta. Samkvæmt úrskurði Héraðsdóms Reykjaness var hann dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir brot sín. Þá var honum gert að greiða 800 þúsund krónur í miskabætur. Þá var Sigmundur Geir Helgason að sama skapi fundinn sekur um aðild sína að árásinni í Hafnarfirði árið 2010 og var hann dæmdur ti tveggja mánaða fangelsisvistar. Alls hefur Sigmundur Geir hlotið sjö dóma fyrir ýmis brot. Samkvæmt úrskurðinum í dag var Sigmundi Geir einnig gert að sæta upptöku á 23 kannbisplöntum, 0.8 grömmum af amfetamíni og einhverju magni af sterum. Hinir þrír sem ákærðir voru í málinu voru ýmist dæmdir í tveggja mánaða fangelsi eða tólf mánaða fangelsi skilorðsbundið. Málið var upphaflega rannsakað samhliða stórfelldu líkamsárásarmáli þar sem þeir Annþór Karlsson og Börkur Birgisson voru höfuðpaurar. Átta aðrir komu við sögu. Nokkrir af sakborningunum hafa komið sögu í báðum málum. Allir hafa þeir þegar verið dæmdir í fangelsi fyrir það. Málin tvö voru aftur á móti rekin í sitthvoru lagi fyrir héraðsdómi.
Mest lesið Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Var þetta einhver skets?“ Innlent Fleiri fréttir Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sjá meira