Sagðist vera með sælgæti í bílnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 13. febrúar 2013 10:30
Foreldrar í Lindaskóla í Kópavogi fengu tölvupóst í gær þar sem þeir voru hvattir til að leggja áherslu á það við börn sín að fara ekki upp í bíla hjá ókunnugu fólki. Tilefnið voru tveir atburðir sem átti sér stað í gær. Um átta leytið í gærmorgun var níu ára drengur á leið í skólann. Bíll renndi upp að stráknum og bauð karlmaður honum far og lét hann vita að í bílnum væri fullt af sælgæti. Hrafn Kristjánsson, faðir drengsins, ritaði stöðufærslu á Facebook öðrum til varnaðar í gærkvöldi. „Ég á erfitt með mig þegar ég ímynda mér hvað gerst hefði ef X hefði látið blekkjast en blessunarlega hljóp hann samstundis í burtu og í skólann. Þennan sama leik lék þetta auma viðrini alla vega einu sinni til viðbótar þann daginn í sömu götu, blessunarlega án árangurs. Því miður man X ekki hvernig bíllinn leit út, svo mikill var flýtirinn og hræðslan." Samskonar atvik átti sér stað síðar um daginn þegar maður reyndi að lokka dreng upp í bíl sinn á sömu slóðum. Drengurinn var á leið heim úr skólanum. Athygli vekur að Hrafn og kona hans veltu fyrir sér hvernig þau gætu undirbúið son sinn fyrir aðstæður sem þessar þegar hann hóf skólagöngu. „Á endanum tók ég þann pól í hæðina að ganga fyrstu 3-4 dagana með honum í skólann og hreinlega tók æfingu í því að hlaupa af stað um leið og einhver bar sig svona að. Ég sviðsetti hinar og þessar aðstæður og reyndi að fara yfir hvað mennirnir gætu notað til að lokka hann í bílinn," skrifar Hrafn á Facebook. Hrafn, sem hefur getið sér gott orð við íþróttaþjálfun hér á landi, segir í samtali við Vísi að hann hafi ákveðið að taka á þessu eins og um íþróttaæfingu væri að ræða. „Drengurinn á erfitt með að skilja að svona illt geti búið í fólki. Því fannst mér skilvirkast að æfa aðstæðurnar endurtekið. Þannig myndi ég búa til ósjálfráð viðbögð. Maður heldur hins vegar umræðunni alltaf lifandi og með aldrinum eykst skilningur hans um hvað ræðir," segir Hrafn Lögreglan sótti fjölskylduna heim í gærkvöldi. Að sögn Hrafns hafði lögreglan ekki á orði að einhver ákveðinn aðili lægi undir grun. Stutt er síðan nokkrir íbúar í hverfi fjölskyldunnar tóku sig til og dreifðu miðum í hús þar sem meintur barnaníðingur var nafngreindur. Hrafn segir þann aðila ekki koma til greina. Umrætt bréf vakti mikla athygli enda virtist það illa ígrundað. Bæði var maðurinn rangnefndur auk þess sem aldri hans skeikaði um átján ár. Forráðamenn Lindaskóla sendu foreldrum barna í skólanum stuttan tölvupóst í gær í kjölfar atburðanna. Þar var foreldrum bent á að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíla hjá ókunnugu fólki. Hrafn segir í lok færslu sinnar að hann sé ekki að berja sér á brjóst og monta sig sem foreldri. Þá sé hans leið, að æfa viðbrögð sonar síns, engan veginn sú besta eða eitthvað sérstök. Hann muni hins vegar hve pottþéttur hann hafi verið innra með sér að sonur hans þyrfti aldrei að grípa til þess að „forða sér undan svona ógeði í hinu rólega Lindahverfi." „Eins óþægilegt og það er að hugsa til þess er illir, ómerkilegir aumingjar þarna úti sem víla ekki fyrir sér að myrða sálina í börnunum okkar. Það er aldrei of varlega farið," ritar Hrafn. Í samtali blaðamanns við lögregluna í Kópavogi kom fram að lögreglan hvetur alla til þess að tilkynna atburði sem þessa. Lögreglan fylgi á eftir lýsingum á mönnum og ökutækjum og fylgi málunum eftir.
Mest lesið Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi Innlent Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Brestir í MAGA-múrnum Erlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Innlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent Fleiri fréttir Ekki dómarans eins að meta hvort umskurn væri hættuleg Theodóra ætlar ekki fram aftur fyrir Viðreisn „Hæstvirtur yfirlætisráðherra, nei fyrirgefðu, hæstvirtur forsætisráðherra“ Lesstofu Borgarskjalasafnsins lokað Margrét Löf dæmd í 16 ára fangelsi „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Sjá meira