Er ekki karl í krapinu í brimskafli Kolbeinn Óttarsson Proppé skrifar 25. febrúar 2013 09:30 Katrín Jakobsdóttir segir að þrátt fyrir slælega útkomu flokksins í skoðanakönnunum sé hugur í flokksfólki. "Við höfum að mörgu leyti verið í nauðvörn. Ég held að við höfum hins vegar mjög margt fram að færa.“fréttablaðið/stefán
Þau tíðindi urðu í sögu Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um helgina að skipt var um formann. Steingrímur J. Sigfússon hafði gegnt formennsku frá stofnun flokksins og raunar fyrr, í óeiginlegri merkingu. Katrín Jakobsdóttir, sem verið hefur varaformaður flokksins í tíu ár, tók við keflinu. Hvernig verður hún frábrugðin Steingrími sem formaður? „Við erum auðvitað búin að starfa saman í tíu ár í forystunni og lengur innan hreyfingarinnar. Áherslur okkar hafa að mörgu leyti farið saman. Það er svolítið erfitt að byrja svo að skilgreina sjálfa sig sem eitthvað ægilegt spútnik. Sagan verður auðvitað bara að dæma þetta, en við erum náttúrulega ólíkt fólk, með ólíkan bakgrunn. Ég kem úr blokk í Reykjavík og Steingrímur kemur af stærsta býlinu í Þistilfirði. Ólíkur bakgrunnur hefur sitt að segja og við höfum ólíka nálgun á stjórnmálin, þó við deilum grunngildum þessarar hreyfingar."Það er þá ekki von á stefnubreytingu? „Nei, það mundi ég ekki segja, en við Steingrímur erum náttúrulega með ólíka nálgun á hlutina."Ýmis orð hafa verið látið flakka síðan þú tilkynntir um formannsframboð og þú meðal annars verið kölluð gluggaskraut. Hvaða augum lítur þú slík ummæli? „Það er alls konar umræða alltaf í gangi og það virðist mega kalla fólk alls kyns nöfnum. Það er líka ýmislegt sagt um Bjarna Benediktsson og tiltekinn aftursætisbílstjóra í hans flokki. Kannski er ekki alveg hægt að tala um hlutina sem eingöngu kynbundna, en auðvitað er þetta að einhverju leyti kynbundin umræða líka. Og það finnst mér mjög gamaldags. En, það er alveg öruggt að við höfum haft formann sem er karl í krapinu og ég er örugglega ekki þannig formaður. Þessu var fyrst og fremst beint til minna félaga og þeir verða að lifa með því að hafa formann sem er ekki karl í krapinu í brimskaflinum."Stefnt að félagshyggjustjórnLandsfundur samþykkti ályktun um að ljúka bæri aðildarviðræðum við Evrópusambandið innan ákveðinna tímamarka og bera samning undir þjóðina. Liðkar þetta fyrir stjórnarmyndunarviðræðum við Samfylkinguna? „Við þurfum nú fyrst að fá eitthvert fylgi. Mér finnst bara allt of snemmt að segja til um það." Landsfundur felldi tillögu um að útiloka stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisflokkinn, en samþykkti að stefna skyldi að félagshyggjustjórn. Katrín segir að fundurinn hafi viljað hafa tillöguna með jákvæðum formerkjum. „Sjálfstæðisflokkurinn talar mest um afnám þeirra breytinga sem við höfum gert á skattkerfinu og að taka aftur upp flatt skattkerfi. Þetta hefur verið eitt af helstu málum okkar, að ná fram þrepaskiptu skattkerfi á einstaklinga, til þess að auka jöfnuð í samfélaginu. Við sjáum að það hefur gerst og ef við berum saman tölur frá 2007 og 2013, þá er augljóst að jöfnuður hefur aukist á Íslandi. Skattkerfið sem stjórnvöld notuðu jók ójöfnuð á árinu 2007. Þetta er sú leið sem Sjálfstæðismenn boða nú að farin skuli á ný. Þetta, og sú ofuráhersla sem þeir hafa lagt á virkjanaframkvæmdir og stóriðju, tel ég að geri þessum flokkum erfitt um samstarf."Ekki alls konar fyrir allaEn hverjar verða helstu kosningaráherslur Vinstri grænna? „Ég hef lagt áherslu á það að við getum ekki gengið fram með alls konar fyrir alla, eins og mér hefur þótt formenn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks gera núna. Hins vegar er staðan núna auðvitað betri en hún var árið 2009. Það er aðeins meira svigrúm til að gera eitthvað. Stóra málið finnst mér vera að horfa á kjör almennings. Það er alveg ljóst að þó að það hafi gengið að draga úr atvinnuleysi, og við höfum tekist á við ríkisfjármálin, þá er staða mjög margra enn þá verri en hún var fyrir hrun. Fólk hefur úr minna að moða og á erfiðara með að láta enda ná saman. Það á við bæði um lágtekjuhópa og millitekjuhópa og mér finnst það vera stóra verkefnið; að beita sér fyrir því að bæta kjör fólks. Það fer saman við að auka vöxt í samfélaginu, á sjálfbæran hátt. Það er kannski stóra málið, held ég, því ég hugsa að allir flokkar tali fyrir bættum kjörum almennings fyrir þessar kosningar, stóra málið er að það sé gert á sjálfbærum grunni og ekki verði farið í einhverjar stórar patentlausnir til að skapa gervihagvöxt sem síðan skilar ekki langtímaárangri. Mér finnst þetta vera verkefnið. Það má fara ýmsar leiðir í því, eins og við höfum verið að ræða hér á fundinum, hvað varðar húsnæðisskuldir. Við viljum kanna leiðir til að skoða sérstaklega lán tekin á árunum fyrir hrun og gera einhverja áætlun til fimm til átta ára, eitthvað slíkt, til að skoða höfuðstól þessara lána. Það þarf líka að skoða barnabótakerfið. Tölurnar sýna að þar hafa Íslendingar dálítið setið eftir. Síðan þarf auðvitað að skoða það hvernig við getum haldið áfram að byggja upp atvinnulífið, sem auðvitað skapar velsældina til að hlutirnir geti haldið áfram."
Mest lesið Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Innlent Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Innlent Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Innlent Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Innlent Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Fleiri fréttir Húsfyllir á stofnfundi hjá Áfram Ísland Fræða almenning í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar Útilokað að hundur sem týndist fyrir 38 árum sé sá sami og fannst við Langjökul Átta handteknir vegna fíkniefnaræktunnar Hækka gjald fyrir heilsugæslu og taka upp nýtt fyrir sjúkraþjálfun Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða Strætó og sláttutraktor lentu saman Enginn handtekinn en áfram áætlað að sömu aðilar hafi verið að verki Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Ríflega 75 hafa afbókað gistingu á Hótel Breiðavík í aðdraganda almyrkva Sýknuð af kröfum Vestmannaeyjabæjar Fimmtíu myndaðir og fimm handteknir í alþjóðlegum aðgerðum gegn vændi á Íslandi Forseti tekur sæti í ráðgjafanefnd um gervigreind Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Rútuslys, umferðarhnútar og afbókanir í almyrkva Matthías kominn á áfangaheimili Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Kona mannsins sem lést þungt haldin Eina tilboðinu í ráðhúströppurnar hafnað og verkið boðið út að nýju Ráðin forstöðumaður Heyrnar- og talmeinastöðvar Viðbragðsáætlun virkjuð vegna fjarskiptaleysis á Sjúkrahúsinu á Akureyri Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Björgunarsveitir fara að lambinu: „Vonumst eftir því besta“ Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Ósamræmi einkunna: „Við verðum að horfast í augu við það“ Nám í dýralækningum í fyrsta sinn í boði hérlendis Hamagangur meirihlutans minni á norsku Exit-þættina Sjá meira
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“