Líkir meðferð á Berki og Annþóri við Guðmundar- og Geirfinnsmálið VG skrifar 4. apríl 2013 09:58 Hjörleifur Sveinbjörnsson ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.
Hjörleifur Sveinbjörnsson, þýðandi og eiginmaður Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, líkir meðferð réttarkerfisins gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni við málsmeðferð sakborninga í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Í grein sem birtist í Fréttablaðinu á og á Vísi í dag skrifar Hjörleifur meðal annars: „Stórir hópar í samfélaginu heimtuðu sökudólga og fólk úr heimi stjórnmála og fjölmiðla kynti undir svo úr varð eitruð blanda. Sökudólgarnir fundust m.a. vegna þess að það var argað að þeir yrðu að finnast." Annþór og Börkur eru dæmdir ofbeldismenn en báðir hafa þeir orðið uppvísir af mjög grófum ofbeldisverkum. Nú dúsa þeir tveir saman á gangi á Litla Hrauni og hafa verið þar í tæpt ár. Ástæðan er sú að þeir eru grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum, Sigurði Hólm Sigurðarssyni, að bana í klefa hans í maí á síðasta ári. Rannsóknin hefur tekið langan tíma sé tekið mið af morðrannsóknum síðustu ára. Meðal þess sem beðið er eftir er niðurstaða dómskvadds matsmanns á krufningaskýrslu Sigurðar. Hjörleifur skrifar að hátt í ársvist á einangrunargangi, með mjög takmörkuðum möguleikum á að hreyfa sig, getur varla verið mannbætandi, eins og hann orðar það. „Er fangelsið svona vanbúið?" spyr Hjörleifur og heldur áfram: „Er verið að tryggja öryggi einhverra? Og það sem mestu skiptir: Fer ekki að bóla á krufningarskýrslu eftir allan þennan tíma svo botn fáist í þetta mál og hinni löngu einangrun megi ljúka? Ég held að það sé til bóta að fá svör við þessum spurningum." Grein sína lýkur Hjörleifur svo á þessum orðum: „Mér dettur ekki í hug að mæla ofbeldisverkum bót. Fyrir mér mega og eiga ofbeldismenn að fá makleg málagjöld en enn og aftur: Þeir verða þá að vera sannir að sök, að undangenginni réttlátri málsmeðferð. Besti punkturinn aftan við Guðmundar- og Geirfinnsmál er að þau endurtaki sig ekki." Hægt er að lesa grein Hjörleifs hér.
Mál Annþórs og Barkar Lögreglumál Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Innlent Fleiri fréttir Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Sjá meira