Lýsir kynnum sínum af Karli Vigni og Helga Hróbjartssyni - „Nú tek ég blaðið frá munninum“ 9. janúar 2013 23:06 „
Ég hef undanfarna daga séð Kastljós, eftir það ákvað ég að segja mína sögu. Sögu mína sem hef lent í kynferðisbrotamönnum." Þetta ritar Gunnar Páll Gunnarsson, kokkur, á vefsvæði sínu í dag. „Ekki til að allir færu nú að vorkenna mér og heldur ekki til að bæta mér í skara reiðra manna sem vilja velta barnaníðingum upp úr tjöru og fiðri. Heldur til þess að hjálpa þeim sem hafa lent í því sama. Hvetja þá til þess að koma fram og segja sína sögu. Hversu ljót hún er og minningin sár.“ Gunnar Páll lýsir hér kynnum sínum af Karli Vigni Þorsteinssyni og Helga Hróbjartssyni, presti. Karl Vignir hefur viðurkennt að hafa brotið á hátt í fimmtíu börnum á síðustu fimm áratugum. Það gerði hann, meðal annars, þegar hann starfaði á Hótel Sögu. Gunnar Páll var þá nemi í eldhúsi hótelsins. Gunnar Páll segir að Karl Vignir hafi verið vel liðinn á hótelinu, hress og skemmtilegur. „Svo stakk hann einu sinni upp á því hvort ég kæmi ekki í heimsókn til hans og við hlustuðum á smá tónlist og sæum video og svo framvegis," skrifar Gunnar Páll. „Svo kom rothöggið þegar hann fór að tala um að ef ég væri góður drengur þá væri sko allt opið og svo kýldi hann mig léttilega í klofið og blikkaði mig kankvíslega. Mér krossbrá, fattaði á stundinni hvað kallinn hafði í huga og sá allt ferlið fyrir mér á sömu stundu." Gunnar Páll lýsir því síðan þegar hann ræddi við aðra nema á hótelinu um atvikið. „Við töluðum oft um að klaga kallinn fyrir Konna hótelstjóra en þegar allt kom til alls þá þorði enginn „upp á teppi" til Konráðs og stama upp erindinu, við vorum allir skíthræddir við Konna hótelstjóra," ritar Gunnar Páll. „Kalli var líka vel liðinn hjá „öllum" sérstaklega hjá eldri kynslóðinni. Alltaf með Guðsorð á vörum, kvikur í svörum og leirburðurinn rann útúr honum í formi ferskeytlna og þess háttar." Þá lýsir hann einnig atviki sem átti sér stað nokkru áður þegar hann var virkur í félagslífi æsulýðsfélags kirkjunnar á Selfossi. „En þetta setti allt mitt tilfinnalíf í rúst, sérstaklega þar sem Helgi Hróbjartsson hafði líka misnotað sér aðstöðu sína sem prestur, trúboði og "vinur"." „En það var eftir matinn að hann kom með mér inn í herbergi og lokaði svo hurðinni. Það var smá sem hann vildi tala við mig um..... Það skipti svo engum togum að hann tók mig í faðm sinn, faðmaði mig fast að sér og kyssti mig. Stakk tungunni upp í mig og hvíslaði hvað honum fyndist vænt um mig og hvað hann elskaði mig mikið. Ég var bara 14 eða 15." Gunnar Páll segir að kynni sín af Karli Vigni og Helga, sem og þriðja manninum sem hann nafngreinir ekki, hafi haft verulega áhrif á sálarlíf sitt. „Þessir báðir atburðir (ásamt einu atviki til) settu mig gjörsamlega úr sambandi tilfinningalega séð. Ég gat ekki komið mér í fast samband. Traustið var farið. Þessi tilfinngarússíbani fór að lægja þegar ég nálgaðist fertugt og loksins nú um fimmtugt get ég tekið blaðið frá munninum, litið fortíðina augum og sagt ykkur sögu mína." Hann lýkur síðan greininni á þessum orðum: „Þessir menn eru veikir, fárveikir. Og þeir hafa ábyggilega verið beittir kynferðislegu ofbeldi þegar þeir voru litlir. Það gerist nefnilega oft svona, menn brenglast svakalega í kollinum við svona árásir. En ég slapp vel frá þessu og hef með góðri hjálp konunnar minnar getað unnið mig úr þessu foraði og er ég þó ekki búinn ennþá að súpa kálið úr ausunni."
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Vaktin: Hildur valdi Viðreisn og Framsókn Innlent Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu Innlent „Þetta vita Einar og Björg“ Innlent Býr sig undir það versta en vonar það besta Innlent Svona kynntu oddvitarnir nýjan meirihluta í Viðey Innlent Hannes Valle fær þrjú ár fyrir brot á Múlaborg Innlent „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Innlent Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Fleiri fréttir „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi „Orð hennar og þessar upphrópanir ekki til sóma“ Reyndi að fá Miðflokk með og segir stöðu Ara ekki friðþægingu „Ákveðin svik við úrslit kosninganna“ Kolbeinn tekur við af Bryndísi sem ráðuneytisstjóri Vilja verja pláss íslenskra sjómanna Meirihluti myndaður í Viðey og Hildur nýr borgarstjóri Hildur Björnsdóttir nýr borgarstjóri Sjá meira