Innlent

Dómari á ekki að víkja sæti vegna hrákans

BBI skrifar
Héraðsdómarinn Sveinn Sigurkarlsson er ekki vanhæfur til að fara með mál ákæurvaldsins gegn Berki Birgissyni, Annþóri Kristjáni Karlssyni og fleirum. Hæstiréttur felldi úr gildi úrskurð dómarans um að hann væri vanhæfur til að fara með sakamálið vegna þess að Börkur hrækti á annan dómara við sama dómstól.

Ákæruvaldið höfðaði mál í apríl gegn Berki, Annþóri og fleirum fyrir margar sérstaklega hættulegar líkamsárásir. Málið var upphaflega rekið í Héraðsdómi Reykjaness en við þinghald í vor hrækti Börkur á dómarann Söndru Baldvinsdóttur og kallaði hana tussu. Í kjölfar þess úrskurðuðu allir dómarar við dómstólinn sig vanhæfa til að dæma í upphaflega málinu, enda töldu þeir að draga mætti í efa að þeir gætu litið hlutlaust á málið.

Nú hefur Hæstiréttur fellt þennan úrskurð úr gildi. Dómstóllinn tekur fram að um tvö alls óskyld mál sé að ræða og því geti sakargiftir í öðru málinu ekki valdið því að dómari sé vanhæfur í hinu. Dómstóllinn tekur semsagt undir að dómarar við dómstólinn hafi verið vanhæfir til að ákvarða Berki refsingu fyrir hrákann en það gerir þá í sjálfu sér ekki vanhæfa til að fjalla um önnur brot Barkar.

Héraðsdómaranum er nú gert að taka málið fyrir aftur. Börkur var í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir hrákann en eftir stendur ákæran fyrir hinar líkamsárásirnar.


Tengdar fréttir

Börkur dæmdur í hálfs árs fangelsi

Börkur Birgisson var dæmdur í 6 mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni þegar hann hrækti á skikkju héraðsdómara og kallaði hana "tussu“. Börkur mætti ekki fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun að eigin ósk en síðast þegar hann mætti þangað reyndi ungur karlmaður að koma úlpu í hans hendur þvert á vilja lögreglunnar. Sá var handtekinn og verður líklega einnig ákærður fyrir brot gegn valdstjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×