Nánast öll börn í leikskólum borgarinnar í heilsdagsvistun 10. september 2012 07:00 Framlög Reykjavíkurborgar til leikskóla hafa aukist um 2,7 milljarða frá árinu 2007. fréttablaðið/anton Visir/anton
Leikskólaplássum sem í boði eru í Reykjavík hefur fjölgað um 19 prósent frá árinu 2000. Hjá borginni hefur þeim fjölgað um 11,4 prósent, úr 5.240 plássum í 5.837 pláss í ár. Þegar sjálfstætt starfandi skólum er bætt við hefur plássum fjölgað úr 5.670 árið 2000 í 6.750 í ár. Fréttablaðið leitaði upplýsinga hjá Reykjavíkurborg um þróunina í leikskólamálum. Ýmislegt forvitnilegt kemur í ljós þegar rýnt er í tölurnar. Þar má til dæmis sjá að plássum hjá sjálfstætt reknum leikskólum fækkaði á milli áranna 2011, þegar þau voru flest, og 2012. Plássum á einkareknu skólunum hefur þó fjölgað um 12,3 prósent frá árinu 2000. Þegar tölur Hagstofu Íslands eru skoðaðar sést að börn á aldrinum tveggja til fimm ára í Reykjavík voru 6.624 árið 2000 en í ár eru þau 6.684. Það er fjölgun upp á tæpt prósent, sem er örlitlu minna en íbúafjölgun alls á tímabilinu. Börnum sem njóta heilsdagsvistunar, sjö klukkustundir á dag eða lengur, hefur fjölgað mikið á tímabilinu. Árið 2000 voru um 70 prósent barna í slíkri vistun en í ár eru þau 97 prósent. Það þýðir að nær öll börn á leikskólum í dag eru í heilsdagsvistun. Hvort það er vegna aukins vinnutíma foreldra eða ekki skal ósagt látið. Hildur Björk Svavarsdóttir, deildarstjóri hjá skóla- og frístundasviði borgarinnar, segir þetta þýða að mun fleiri dvalarstundir verði til í leikskólanum, en það er sá tími sem barn dvelur í leikskólanum. "Sem dæmi um það voru 3.670 börn með heilsdagsvistun árið 2000, sem þýðir um 30.000 dvalarstundir, en 5.660 árið 2011, sem eru um 45.000 dvalarstundir. Framboð á þjónustu hefur því aukist meira en sem nemur fjölda plássa, þar sem lengd hvers pláss hefur einnig aukist." Fréttablaðið fékk ekki kostnaðartölur við leikskólana nema frá árinu 2007. Á þeim tíma hafa framlög borgarinnar til þeirra aukist úr 7,3 í 10 milljarða. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira