Björgunaraðgerðir fyrir norðan á byrjunarstigi GRV skrifar 19. september 2012 13:00 Hér er verið að bjarga kind undan snjó.
Sveitarstjóri Skútustaðahrepps segir alla hafa lagst á eitt við að bjarga því sem bjargað verður eftir óveðrið sem reið yfir Norðausturland í síðustu viku. Hún segir aðgerðir þó enn í fullum gangi. Í daga fara fram íbúafundir í umdæmi sýslumannsins á Húsavík vegna óveðursins síðustu daga. Fyrsti fundur hófst klukkan tíu í Skjólbrekku, síðan verður fundað í Ýdölum klukkan hálftvö og klukkan fimm síðdegis hefst fundur í Stórutjarnarskóla. Fjölmargir fulltrúar hins opinbera og ýmissa félagasamtaka mæta á fundinn og sitja fyrir svörum. Dagbjört Bjarnadóttir oddviti Skútustaðahrepps segir að íbúar bíði spenntir eftir fundunum og hvaða úrræði verði kynnt þar. „Hvað Bjargráðasjóður getur gert og hvernig menn ætla að bregðast við. Það er stóra verkefni fundarins," segir Dagbjört. Dagbjört segir að almennt beri menn sig vel eftir áföll undanfarinna daga. „Það hafa allir gert það sem þeir geta held ég. Og björgunarsveitir, RARIK menn og ættingjar og vinir. Það hafa allir verið boðnir og búnir til að gera allt sem í þeirra valdi stendur. EN þegar náttúruöflin taka sig til þá erum við svolítið máttvana," segir Dagbjört. Dagbjört segir að tjónið sé ekki enn orðið fyllilega ljóst. „Girðingar eru ekki komnar undan snjónum, rollur eru ekki komnar heim, lifandi eða dauðar. Það er svo mikið eftir hjá okkur ennþá. Í Fréttablaðinu í morgun er greint frá því að hræ af dauðu fé hafi þegar verið urðuð í hólum og giljum í stað þess að flytja þau á sorpbrennslustöð til förgunar. Þetta er á meðal þess sem tekið verður fyrir á fundunum en Dagbjört bendir á að aðgerðum sé hvergi nærri lokið. „Fólk þarf eiginlega að koma hingað til að sjá hvað við erum stutt komin. Björgunaraðgerðir eru í raun ennþá í gangi. Veður hefur verið það vont að menn fara eins og þeir geta til fjalla en það er enn úrkoma. Slydda inn á milli. Þar sem er ekkert," segir Dagbjört.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Innlent Skafið og saltað Veður Fleiri fréttir Loka vefsíðum tímabundið í öryggisskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Sjá meira