Innlent

Þrír strandveiðibátar staðnir að ólöglegum veiðum

Landhelgisgæslan stóð þrjá strandveiðibáta að meintum ólöglegum veiðum á Húnaflóa og var þeim vísað til hafnar.

Þeir voru að veiðum á svæðum, þar sem skyndilokanir eru í gildi og verða skipstjórar bátanna kærðir fyrir athæfið.

Á heimasíðu Landhelgisgæslunnar segir að talsvert sé um slík brot, einkum meðal strandveiðibáta. Töluvert hefur verið um skyndilokanir vegna undirmálsfisks á veiðisvæðum síðan í vor og segjast strandveiðisjómenn mega hafa sig alla við að fylgjast með þessu frá degi til dags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×