Krossviður Jónasar rifinn af veggjunum 22. júní 2012 05:00 Hér er Gunnar Bjarnason trésmiður við vinnu sína. Norskir viðir hússins eru í góðu ástandi þó gamlir séu. fréttablaðið/anton
Endurbætur á innviðum Menntaskólans í Reykjavík halda áfram í sumar. Leitast er við að endurheimta upprunalegan frágang hússins. Til þess er fjarlægður krossviður af veggjum sem á sér rætur í endurbótum Jónasar frá Hriflu um 1930. Þessa dagana er unnið að viðhaldi innanstokks í Menntaskólanum í Reykjavík. Markmið framkvæmdanna er að færa innri frágang skólans eins nálægt uppruna sínum og kostur er á og að bæta tæknilegt ástand hússins, bæði með tilliti til notkunar og öryggisatriða. Það má hins vegar vart færa til einn gólflista án þess að saga þessa einstaka húss komi upp í hugann. Stefán Örn Stefánsson hjá arkitektastofunni Argos, sem mótaði tillögur að viðgerðum og endurbótum skólans, segir það ekki einfalt verk að endurgera innviði skólans. „Krossviðurinn er tekinn niður og veggirnir kalkmúraðir upp á nýtt eins og var. Upphaflega múrverkið var allt farið að springa á sinum tíma og plöturnar því settar upp.“ Hús Menntaskólans er stokkahlaðið bjálkahús og mjög stórt sem slíkt. Það er meðal merkustu bygginga landsins frá fyrri tíð og eitt fyrsta tvílyfta húsið sem reist var í Reykjavík. Þá er húsið elsta skólahús landsins sem uppi stendur í óbreyttri mynd, reist samkvæmt konunglegri tilskipun frá 7. júní 1841 eða þegar ákveðið var að flytja lærða skólann frá Bessastöðum til Reykjavíkur. Og það er kunnara en frá þurfi að segja að í húsinu hefur sama stofnunin – Reykjavíkurskóli – verið til húsa óslitið frá upphafi, eða frá 1. október 1846 þegar skólahald hófst. Handverkið sem þarf til viðgerðanna er ekki allra. Því koma að verkinu þrír völundar eða þeir Gunnar Bjarnason trésmiður, sem er einn fárra sem kann til verka við hús sem þetta, Bragi Guðjónsson sér um múrverkið og Helgi Grétar Kristinsson sem blandar límfarvann og olíuna sem fer á timbrið; hvort tveggja í anda málningarefna frá fyrri tíð. Rektor Menntaskólans, Pálmi Hannesson, ritaði grein í Tímann 1. maí 1935 þar sem hann víkur að endurbótum skólans árin 1928 til 1930. Í grein hans kemur fram að Jónas frá Hriflu hafi staðið fyrir endurbótunum, sem vakti nokkra furðu því seint hefði Jónas verið talinn sérstakur vinur þeirra sem þar sátu á skólabekk. Þar lýsir rektor hinum „gljáða krossvið“ sem gangar og stofur skólans voru lagðar, en er fyrst núna fjarlægður.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Sjá meira