Innlent

Fimm ökumenn teknir úr umferð

Fimm ökumenn voru teknir úr umferð á höfuðborgarsvæðinui í nótt, tveir fyrir ölvunarakstur og þrír fyrir fíkniefnaakstur.

Einn þeirra var réttindalaus, annar hafði ekið yfir gatnamót á rauðu ljósi, og sá þriðji var á ótryggðum bíl, þannig að númerin voru klippt af honum.

Þessu til viðbótar voru tveir ökumenn látnir hætta akstri eftir að blástur í öndurnarsýnamæla, sýndi að þeir höfðu neytt áfengis, en aðeins undir viðmiðunarmörkum. Þeir mega sækja bíla sína á lögreglustöðina í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×