Kemur vampíruleikurinn út árið 2014? BBI skrifar 22. júní 2012 23:58
Vísbendingar eru um að þriðji leikur CCP, World of Darkness, komi út árið 2014. Í frétt í Viðskiptablaðinu í gær er vitnað í ársskýrslu fyrirtækisins. Þar er farið yfir þróunaráætlun en í henni er gert ráð fyrir því að leikurinn verði tilbúinn til framleiðslu í ár og hann verði gefinn út árið 2014. CCP hefur ekki gefið upp hvenær leikurinn kemur út. Í samtali við fréttastofu vill Eldar Ástþórsson, fjölmiðlafulltrúi CCP, ekkert gefa út. Enn hvíli leynd yfir því hvenær fyrirhuguð útgáfa verður. CCP hefur í nógu að snúast um þessar mundir því fyrirtækið er nú að reyna að tryggja árangursríka útgáfu á DUST 514 tölvuleiknum, sem hefur hlotið mikið lof frá starfsmönnum tölvuleikjaiðnaðarins. Kynningarstarfsemin fer fram í samstarfi við SONY og segir Eldar óneitanlega öflugt tækifæri að fá að vinna með svo stóru fyrirtæki. Um leið vinnur fyrirtækið að því að tryggja áframhaldandi velgengni EVE. Sú vinna gengur mjög vel að sögn Eldars. World of Darkness verður svo þriðji leikur fyrirtækisins. Hann verður fjölspilunarleikur fyrir PC eins og EVE Online, en sögusviðið er allt annað. Vampírur í stórborg, en ekki geimskip í fjarlægum himingeimi. Framleiðslan er í fullu gangi, að mestu leyti hjá teymum CCP erlendis. CCP hefur gefið út að notendur muni byrja sem dauðlegir menn sem geta valið um að verða vampírur eða vera áfram mannlegir. Það verður raunverulegur möguleiki á því að persóna spilaranna deyi endanlega ef þeir taka of mikla áhættu. Þá verða menn að byrja leikinn upp á nýtt, en þetta er í samræmi við EVE tölvuleikinn þar sem spilarar geta misst geimskipin sem þeir stýra ef þeir eru drepnir. Kynningarmyndband fyrir tölvuleikinn má sjá með því að smella á tengilinn hér að ofan.
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Innlent Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Innlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Innlent Fleiri fréttir Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Sjá meira