Tjáningarfrelsið var fótum troðið - dómurinn reifaður BBI skrifar 10. júlí 2012 10:34 Dómsalur Mannréttindadómstólsins. Mynd/AFP
Það sem skipti höfuðmáli í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu sem féllu í dag, þar sem íslenska ríkið var talið hafa brotið gegn tjáningafrelsi tveggja blaðamanna, er það hlutverk sem fjölmiðlar gegna í lýðræðissamfélagi, þeir eru varðhundar lýðræðisins. Og þó pressan megi ekki ganga út fyrir ákveðin mörk og verði að bera virðingu fyrir orðspori fólks er það engu að síður skylda fjölmiðla að miðla upplýsingum og hugmyndum um málefni sem snerta almenning. Og almenningur hefur rétt til að njóta þeirra. Íslenskir dómstólar höfðu áður dæmt blaðamennina Björk Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur, hvora í sínu lagi, til að þola ómerkingu ummæla sinna og greiða skaðabætur vegna umfjöllunar um nektardansstaði á Íslandi. Umfjöllun Erlu snerist um skemmtistaðinn Strawberries. Í þeirri umfjöllun höfðu ummæli verið höfð beint eftir viðmælanda blaðamannsins og birt í fréttinni. Íslenskir dómstólar töldu að þar sem Erlu hefði ekki tekist að sanna að þau ummæli væru sönn hefði hún gerst sek um ólögmætar aðdróttanir og dæmdi hana til greiðslu skaðabóta. Mannréttindadómstóllinn tekur fram að umfjöllunarefnið í fréttinni, þ.e. nektardansstaðir, hafi átt mikilvægt erindi við almenning enda hefði umræða um strippstaði verið hávær í samfélaginu á þeim tíma. Dómstóllinn bendir á að með því að reka nektardansstaðinn Strawberrie's hafi eigandinn gefið almenningi tilefni til að fjalla um sjálfan sig, þ.e. lagst sjálfviljugur á skotspón almennrar umræðu. Því verði hann að þola óvægnari umræðu en venjulegir menn í samfélaginu. Mannréttindadómstóllin veltir hinum umdeildu ummælum sem birtust í greininni fyrir sér. Þau höfðu eitthvað með mafíustarfsemi að gera. Að mati dómstólsins hafa þau ákveðin einkenni gildisdóma og eru höfð eftir viðmælanda blaðamanns. Almenna reglan er sú að ekki eru jafnstrangar kröfur gerðar til þess að fólk sanni gildisdóma sína í almennri umræðu, og þar sem ekki var beinlínis um staðreyndir að ræða þótti undarlegt að láta blaðamann bera hallan af því að ummælin voru ekki sönnuð. Dómstóllinn tekur fram að blaðamaðurinn hafi reynt eftir megni að birta allar hliðar málsins og því hafi verið um ábyrga blaðamennsku að ræða. Að lokum leggur dómstóllinn mikla áherslu á að ein mikilvægasta leið blaðamanna til að sinna hlutverki sínu og upplýsa almenning er að birta viðtöl við fólk í samfélaginu. Með því að hefta miðlun blaðamanna á ummælum annarra og hana refsiverða er almenn umræða alvarlega sköðuð. Slíkt ætti ekki að gera nema sérlega sterk rök lægju til þess. Með vísan til alls þessa og ófullkomins rökstuðnings íslenskra dómstóla kemst Mannréttindadómstóllinn að þeirri niðurstöðu að það hefði verið nóg að blaðamaðurinn hefði birt fréttina í góðri trú og hann hefði ekki þurft að sannreyna þau ummæli sem hann birti. Með dómi héraðsdóms var því tjáningarfrelsi blaðamannsins fótum troðið. Þessi umfjöllun er byggð á dómi Mannréttindadómstólsins í máli Erlu Hlynsdóttur. Hann má nálgast hér.
Tengdar fréttir Stórsigur fyrir blaðamenn "Ég er í skýjunum yfir þessu," segir Björk Eiðsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt og fyrrverandi blaðamaður á Vikunni. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að íslenska ríkið hefði brotið gegn henni og Erlu Hlynsdóttur blaðamanni þegar þær voru gerðar ábyrgar fyrir ummælum viðmælenda sinna á tveimur dómsstigum á Íslandi. "Þetta er frábært. Fyrir hönd okkar allra í blaðamannastéttinni, þá er þetta bara stórsigur," segir hún. 10. júlí 2012 10:52 Erla og Björk unnu báðar mál sín hjá Mannréttindadómstólnum Erla Hlynsdóttir fréttamaður á Stöð 2 og Björk Eiðsdóttir ritstjóri Séð og Heyrt unnu báðar dómsmál sín gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 10. júlí 2012 08:38 "Stórkostlegur sigur fyrir tjáningarfrelsið“ Ég held að þetta hafi verið stórkostlegur sigur fyrir tjáningarfrelsið í landinu sem hefur verið í nauðvörn síðustu ár fyrir dómstólnum, segir Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður blaðmannanna Bjarkar Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur. 10. júlí 2012 09:58 Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Fleiri fréttir „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Sjá meira
Stórsigur fyrir blaðamenn "Ég er í skýjunum yfir þessu," segir Björk Eiðsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt og fyrrverandi blaðamaður á Vikunni. Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu í morgun að íslenska ríkið hefði brotið gegn henni og Erlu Hlynsdóttur blaðamanni þegar þær voru gerðar ábyrgar fyrir ummælum viðmælenda sinna á tveimur dómsstigum á Íslandi. "Þetta er frábært. Fyrir hönd okkar allra í blaðamannastéttinni, þá er þetta bara stórsigur," segir hún. 10. júlí 2012 10:52
Erla og Björk unnu báðar mál sín hjá Mannréttindadómstólnum Erla Hlynsdóttir fréttamaður á Stöð 2 og Björk Eiðsdóttir ritstjóri Séð og Heyrt unnu báðar dómsmál sín gegn íslenska ríkinu fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. 10. júlí 2012 08:38
"Stórkostlegur sigur fyrir tjáningarfrelsið“ Ég held að þetta hafi verið stórkostlegur sigur fyrir tjáningarfrelsið í landinu sem hefur verið í nauðvörn síðustu ár fyrir dómstólnum, segir Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður blaðmannanna Bjarkar Eiðsdóttur og Erlu Hlynsdóttur. 10. júlí 2012 09:58