"Sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barna" Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 24. júní 2012 12:45 Marta Guðjónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. mynd/GVA
Varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barnanna og taka börn fædd 2011 inn á leikskólana. Útlit er fyrir að ekki sé hægt að taka börnin inn þar sem fjármagns skortir en varaborgarfulltrúinn bendir á að á meðan ekki er hægt að fjölga leikskólaplássum sé hægt að rífa upp aspir og styrkja kvikmyndahús. Útlit er fyrir að börn fædd árið 2011 fái ekki pláss á leikskólum borgarinnar fyrr en í fyrsta lagi á næsta ári vegna sparnaðar. Eva Einarsdóttir borgarfulltrúi Besta flokksins sagði í fréttum okkar í gær að þó pláss væri á einhverjum leikskólanna fyrir fleiri börn þá yrði að fylgja plássinu fjármagn en það væri ekki til. Marta Guðjónsdóttir varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins situr með Evu í skóla- og frístundaráði borgarinnar. Marta segir þetta koma sér á óvart og ekki vera í samræmi við það sem rætt hafi verið í ráðinu. „Við höfum alltaf fengið þær upplýsingar í ráðinu að þessi börn yrðu tekin inn þar sem að pláss er," segir Marta. Marta segir mikilvægt að reynt sé að taka börn inn sem eru orðin 18 mánaða líkt og stefnan var áður hjá borginni. „Vegna þess að þetta skapar mikil vandræði fyrir foreldra að koma þeim ekki í leikskóla og líka vegna þess að það er orðið erfitt að fá pláss hjá dagmæðrum og það er orðið allt yfirfullt í ungbarnaleikskólunum." Marta segir að sjálfstæðismenn muni taka málið upp á næsta fundi ráðsins en hann verður þó ekki fyrr en í haust. Hún gefur lítið fyrir þær skýringar að fjármagn sé ekki til eins og er. „Mér finnst það mjög sérkennilegt að borgaryfirvöld skuli ekki forgangsraða í þágu barnanna. Það er hægt að rífa upp aspir við Ráðhúsið og það er hægt að styrkja Bíó Paradís en við getum ekki fjölgað leikskólaplássum fyrir börnin okkar," segir Marta.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjá meira