Innlent

Reykræst í Vestmannaeyjum

Mikill reykur myndaðist í íbúð við Faxastíg í Vestmannaeyjum snemma í morgun. Engin meiðsl urðu á fólki en allt tiltækt slökkvilið var kallað á staðinn.

Samkvæmt lögreglunni í Vestmannaeyjum var afar mikill reykur í íbúðinni en enginn eldur kom þó upp. Íbúðin var reykræst og er nú talið að reykurinn hafi myndast þegar kveikt var á eldavél í íbúðinni en í henni voru nokkrir pítsukassar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×