Amma eða Garrinn hvort á að ráða? 1. desember 2012 08:00 Auður Jónsdóttir og amma hennar Auður Laxness á góðri stundu. Skáldsaga Auðar, Ósjálfrátt, er sjálfsævisöguleg og amma hennar leikur þar stórt hlutverk.
Viltu ekki fara frá þessum manni? Setningin skellur á hlustunum; hún heyrir hvað amma segir en hverju á hún að svara? Jú? Nei. Hún getur ekkert sagt. Bara horft í gaupnir sér eins og þegar hún var lítil og hafði gert eitthvað ógurlegt af sér. Ég skil bara ekki hvernig þér datt í hug að giftast honum. Ég skil ekki einu sinni hvernig þú getur kysst hann, hvað þá meir, segir amma og horfir sorgmædd á dótturdóttur sína sem situr andspænis henni. Álút með svartan hárflóka ofan í augun sem ljómuðu þegar hún var barn en eru ekki einu sinni brún lengur heldur sokkin ofan í doða, grá slikja liggur yfir þeim og húðin er líka gráleit, á vöngunum og undir hökunni grillir í bólur. Hún hefur svínfitnað á örskömmum tíma, brjóstin þrýsta á stuttermabolinn sem er merktur bjórverksmiðju í Tékklandi. Amma hennar hélt alltaf að hún hefði bein í myndugu nefinu en meira að segja nefið hefur skekkst, stelpan gekk á ljósastaur, sagði hún og virtist segja satt, hvernig sem hún fór að því. Viðkvæðið þessa dagana er að hlutir gerist bara. Svosem við því að búast að hún segði það líka núna. Eyju finnst hún heyra hugsanir ömmu sinnar, svo fastráðin í að skrifa skáldsögu einn daginn að hún hreiðrar um sig í höfðum annarra og hrifsar til sín hugsanir þeirra. Þannig engist hún um af áhyggjum ömmu sinnar af sjálfri sér þangað til augnaráð gömlu konunnar verður óbærilegt. Þetta gerðist bara, stynur hún loks og kyngir hratt. Hlutir gerast ekki bara, Eyja mín. Ó jú. Jú jú jú, hlutir gerast bara. Hún hefur varla gleymt snjóflóðunum fyrir vestan. Þau gerðust bara. Slys gerast, segir amma í góðlátlegum viskutón. En hitt ákveður maður. Hitt? Við erum ákvarðanirnar sem við tökum. Þú ert ósköp góð stúlka, þú tekur bara alltaf rangar ákvarðanir. Viltu meira te? Já, takk, segir Eyja og gjóar augunum á handtösku ömmu sinnar; hún stendur á borðsendanum og minnir á bísperrtan kött sem bíður færis. Augnaráðið fer ekki framhjá ömmu hennar þó að hún sé í miðju kafi að skenkja te í rússnesku teglösin. Hún fyllir þau af rjúkandi heitum vökva, bætir mjólk út í annað glasið og stjakar því, ásamt kúfuðu sykurkarinu, í átt til Eyju áður en hún strýkur hendi laust yfir nýju lagninguna. Hvítt hárið bylgjast í öldum yfir laglegu en svipsterku andliti með djúpum spékoppum og augum sem skipta litum; þau verða mógrá í dagsbirtunni og ljóma af ánægju með hárgreiðslukonuna niðri í sveit, álíka bersögul um tilfinningar og augun í unglingsstelpu þrátt fyrir myndugt fasið. Hún lítur á handtöskuna og þaðan á dótturdóttur sína. Segir: Ég vil gjarnan hjálpa þér að taka góða ákvörðun. Nú? Amma tyllir gleraugum með gylltri umgjörð á nefsoddinn og grípur töskuna. Stingur hendinni ofan í leðrið; þessari kunnuglegu hendi með lifrarblettina á handarbakinu og fölbleikan lófa eftir uppvask í hálfa öld, rauðmálaðar neglur og gullhring með fjólubláum hnullungi á baugfingri. Eyja fylgist með henni gramsa í veskinu með olíumálverkið hans Asger Jorn í bakgrunni: sjálf staðfestan í annars óreiðukenndum heimi. Hún dregur upp samanbrotinn vasaklút, þerrar munnvikin og leggur hann frá sér, síðan dregur hún upp hnausþykkt umslag. Setur það á indverska borðdúkinn með vínrauða munstrinu og lítur í augu dótturdóttur sinnar um leið og hún ýtir því mjúklega í áttina til hennar, eins og Sikileyingur í vafasömum erindagjörðum, og segir: Þú færð þetta í gjaldeyri, ef þú ferð. Hvað er þetta? Hundrað þúsund krónur. Ég tók þær út hjá henni Gullu þegar ég fór niður í sveit að ná í kjúkling handa þér. Augun fljóta þegar hann horfir á hana. Ég gerði ekki ráð fyrir að þú gætir borgað húsaleiguna svo ég sagði íbúðinni upp, segir hún. Hann lyftir brúnum. Það var ekki einu sinni búið að borga þennan mánuð svo fyrirframgreiðslan brúar hann. Og hvað? Ég reyndi að segja þér það í gær, heldur hún áfram. Ég ætla að skreppa til Svíþjóðar. Skreppa? Hún fitlar við tannburstann. Segir síðan já. Hún ætli að skreppa þetta aðeins. Verða brún og skrifa sögu. En síðan komi hún aftur og þá geti þau fundið nýja íbúð. Ábyggilega miklu betri en þessa. Blessuð góða, vertu einlægari við okkur bæði, hlær hann en hláturinn fjarar út í kjökri. Blóðsprengd augun stara ráðvillt á hana. Eins og þau hafa alltaf gert, frá því hún slysaðist í fyrsta skipti heim með honum eftir ball og hann greip fyrir andlit sér þegar hún fór daginn eftir og sagðist deyja ef hún kæmi ekki aftur. Hún trúði honum. Hún bítur á jaxlinn og segir: Ég er einlæg. Hann hlær ennþá hærra. Hættu að hlæja, biður hún. Hann þagnar. Horfir á hana, bíður átekta. Ég, segir hún. Já? Ég þarf að komast burt til að hugsa. Því ég er búin að vera svo hrædd. Hver er ekki hræddur? Manstu, þegar handrukkarinn kom? Þú sagðir mér bara frá honum. En hann kom að hitta þig. Tvisvar. Hann kemur ekki aftur. Hvernig get ég vitað það? Allt í einu grípur hann utan um hana, hratt og klunnalega. Hvíslar að hann lofi því að þessi náungi komi aldrei aftur. Hann skuli sjá til þess. Bara ef … Eyja mín? Eyja rífur sig frá honum. Á miðri skörinni stendur amma hennar með djúpa áhyggjuhrukku og starir á Garrann. Hann drúpir höfði. Snýst um sjálfan sig, bosmamikill í skítugum kraftgalla og stingur pípunni hratt ofan í vasann áður en hann býður góðan daginn. Góðan daginn! segir amma. Eruð þið að kveðjast? Ætli það megi ekki segja það, svarar Garrinn og mjakar sér nær veggnum þegar hún tekur sér stöðu andspænis honum, í dökkblárri sumarkápu með hatt í stíl. Það stendur fjöður upp úr hattinum sem gefur henni valdmannslegt yfirbragð. Ætlaðir þú líka að laga til? tafsar Eyja. Ég er komin til að sækja gardínurnar sem ég gaf þér, svarar amma hennar. Það er best að ég geymi þær. Varstu nokkuð búin að taka þær niður? Eyja deplar augunum hratt. Hvar eru gardínurnar? Hún bara steingleymdi þeim. Setti pokann einhvers staðar og ætlaði alltaf en … Eyja mín, ítrekar amma hennar. Ég er að tala við þig. Eyja kinkar ört kolli. Já, pottþétt, tafsar hún áfram. Örugglega. Hvað áttu við með því, elskan? Ætli ég sé þá ekki bara farinn, segir Garrinn hæglátur. Nei. Bíddu aðeins! Þú þarft að tala við ömmu þína. Bíddu aðeins, amma! Amma og Garrinn horfa bæði spyrjandi á hana sem varpar öndinni léttar þegar Skíðadrottningin stendur skyndilega í dyragættinni …
Menning Mest lesið Sigríður fannst heil á húfi Innlent Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Innlent Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Fleiri fréttir Mikilvægt að fólk þurfi ekki að flýja húsnæði vegna ofnæmis Þriðjungur þjóðarinnar á Chess.com „Glæpsamlegar árásir,“ gæludýr í fjölbýli og gleði með Messi Fjörutíu grindhvalir fastir í Ólafsfirði Braust inn í íbúð í Laugardalnum og allir voru heima Lakasta þátttakan meðal kynsegin fólks Stunda njósnir og hafa athafnað sig á Íslandi Sigríður fannst heil á húfi Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna alvarlegrar stunguárásar Þyrlan send út vegna göngumanns í sjálfheldu Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Ógnarhópar með tengsl við Kína, Aþena og hinseginhátíð í Hrísey Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Kattholt yfirfullt Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Þinglok hvergi í augsýn: „Málþóf! Málþóf!“ Segir komu írsku lögreglunnar marka tímamót í leitinni að Jóni Þresti Vinnuslys í Laugardal þar sem maður fékk járnstöng í andlitið Ísland tekur þátt í aðgerðum gegn skuggaflota Rússlands Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Leit að Sigríði heldur áfram um helgina Kenningar um hvarfið, uggandi rafrettusalar og málabunkinn Flugvél á leið til Íslands lent í Manchester Hörður Svavarsson er látinn Allir úr stærsta árgangi sögunnar fengu inni Lýsa eftir Hlyni Vandamenn megi ekki lengur hjálpa glæpamönnum Sjá meira