Skoðun

Möguleikar á að yfirgefa evrusamstarfið

Þórhildur Hagalín skrifar
Ekkert evruríki getur ákveðið upp á eigin spýtur að yfirgefa evrusamstarfið nema ganga jafnframt úr Evrópusambandinu. Ástæðan fyrir því er sú að í sáttmálunum um Evrópusambandið er ekkert ákvæði sem gerir ráð fyrir því sem möguleika að evruríki hætti að nota evruna. Þvert á móti var það yfirlýstur vilji aðildarríkja ESB að innleiðing sameiginlegs gjaldmiðils væri óafturkallanleg og segir í sáttmálanum um starfshætti Evrópusambandsins að gengi evrunnar sé fest með óafturkræfum hætti gagnvart gengi gjaldmiðils viðkomandi aðildarríkis. Að sama skapi er hvergi gert ráð fyrir því í sáttmálum Evrópusambandsins að hægt sé að vísa tilteknu evruríki úr myntbandalaginu, né Evrópusambandinu ef út í það er farið, án samþykkis þess.

Fyrir aðildarríki sem vill yfirgefa evruhópinn og taka upp sjálfstæða peningamálastefnu eru strangt til tekið tveir möguleikar í stöðunni. Annar er sá að viðkomandi ríki gangi úr Evrópusambandinu, en með Lissabon-breytingunum á sáttmálum ESB gekk í fyrsta sinn í gildi ákvæði sem heimilar aðildarríkjum að segja sig úr sambandinu. Eftir að aðildarríki hefur tilkynnt leiðtogum aðildarríkjanna í leiðtogaráðinu að það vilji segja sig úr Evrópusambandinu ber ráðherraráðinu, fyrir hönd sambandsins, að gera samning við viðkomandi ríki um hvernig staðið skuli að úrsögn þess og framtíðartengslum við sambandið. Sáttmálar ESB hætta að taka til viðkomandi ríkis á gildistökudegi samnings um úrsögn eða, ef enginn slíkur samningur liggur fyrir, þegar tvö ár eru liðin frá tilkynningu um úrsögn. Ákvæðið kveður þannig bæði á um möguleikann til að semja um úrsögn við ESB og um rétt aðildarríkja til einhliða úrsagnar.

Á það hefur verið bent að einhliða úrsögn evruríkis úr Evrópusambandinu, án samkomulags við hin evruríkin og Seðlabanka Evrópu, sé þó óhugsandi í raun og veru. Aðild að myntbandalaginu hafi svo víðtæk áhrif og flókin að ekkert evruríki geti hlaupið frá skuldbindingum sínum öðruvísi en að ganga frá lausum endum í samvinnu við ráðherraráðið og Seðlabanka Evrópu.

Hinn möguleikinn er að aðildarríkið semji sérstaklega um úrsögn sína úr myntbandalaginu við hin aðildarríkin í samræmi við svonefnda hefðbundna endurskoðunarmeðferð sem heimilar breytingar á sáttmálum sambandsins. Fyrir evruríki sem vill gefa evruna upp á bátinn en ekki yfirgefa Evrópusambandið er þetta eina leiðin. Hún krefst þess þó að öll aðildarríkin 27 komist að samkomulagi um hvernig staðið skuli að því að umrætt ríki gangi úr myntbandalaginu því aðeins er hægt að semja um breytingar á sáttmálum sambandsins með einróma samþykki aðildarríkjanna.




Skoðun

Sjá meira


×