Viðskipti innlent

D3 hættir við kaup á fyrirtækinu Miði.is

Engilbert Hafsteinsson
Engilbert Hafsteinsson
D3 miðlar, dótturfélag Senu, hefur fallið frá kaupum á fyrirtækinu Miði.is. Skilyrði Samkeppniseftirlitsins gerðu kaupin óhagstæð fyrir D3 og hefðu ekki skapað þau tækifæri sem stefnt var að með kaupunum, að sögn fyrirtækisins.

„D3 er nýsköpunarfyrirtæki sem miðlar afþreyingu á netinu til Íslendinga og stendur frammi fyrir mikilli samkeppni frá alþjóðlegum risafyrirtækjum á borð við Apple, Amazon, Netflix og Spotify,“ segir í tilkynningu frá Engilbert Hafsteinssyni, framkvæmdastóra D3. Með kaupum á Miða.is var ætlunin að skapa íslenskt mótvægi við erlendu afþreyingarveiturnar.

- sv






Fleiri fréttir

Sjá meira


×