Ráðherrann biður fatlaða afsökunar 29. júní 2012 03:30 Ögmundur Jónasson Innanríkisráðherra boðar lagabreytingar sem koma eiga til móts við kröfur fatlaðra. Fréttablaðið/Valli
Sigurður Kári Kristjánsson, þáverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram tillögu um miðjan síðasta áratug sem uppfylla átti kröfu fatlaðra um aðstoðarmann að eigin vali í kosningum. Málið fékkst ekki afgreitt frekar en þegar Sigurður ásamt öðrum lagði það fram aftur á þinginu 2010-2011, í aðdraganda kosninga til stjórnlagaþings. „Þeir sem ábyrgð bera á því verða að útskýra fyrir sig hvers vegna það var ekki gert þá og hvers vegna ekki er búið að kippa þessu í liðinn og gera nauðsynlegar lagabreytingar fyrir þessar forsetakosningar,“ segir Sigurður Kári. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist hafa talið að sú tilhögun sem höfð var við kosningar til stjórnlagaþings 27. nóvember 2010 gæti haldið áfram. Þá gátu fatlaðir valið eigin aðstoðarmann sem undirritaði sérstakt heit hjá kjörstjóra. „Þetta skýrir andvaraleysi mitt gagnvart nauðsyn lagabreytinga strax,“ segir Ögmundur. Hæstiréttur hafi hins vegar dæmt í janúar 2011 að stjórnvöld geti ekki vikið frá fyrirmælum laga um framkvæmd kosninga. „Af þessum sökum er því miður ekki unnt að verða við kröfum um að fatlað fólk sem þarf aðstoðar við í kjörklefa fái þá aðstoð á annan hátt en skilgreint er í lögum,“ segir ráðherrann sem kveðst í haust munu flytja frumvarp um breytingar. „Af þessu tilefni vil ég biðja fatlaða einstaklinga sem telja nú á sér brotið afsökunar á því að lögunum hafi ekki þegar verið breytt en framangreint er skýring á því hvers vegna málum er háttað eins og raun ber vitni.“ - gar
Mest lesið Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna Innlent Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Innlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Innlent „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Fleiri fréttir Gususánur séu ekki, og verði aldrei, baðhús „Ég væri hikandi að hafa börnin mín hjá mér“ Bæjarstjóri í beinni, gusumeistari sem biðlar til yfirvalda og sirkus Vísað á brott af hjúkrunarheimilinu í annarlegu ástandi Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Áfram Ísland með opinn fund á Skaganum Lýsa eftir Sæbjörgu Allir sem voru í ökutækjunum uppistandandi eftir áreksturinn „Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Endurskoða sparkvöll við Landakot Notaði dulnefni og sveik út vörur fyrir tugi milljóna „Við erum fyrst og fremst að varða leiðina heim fyrir Grindvíkinga“ Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Sjá meira