Bræður björguðu kafara úr lífsháska 25. júní 2012 04:00 Bræðurnir heyrðu köll kafarans úr sjónum og sigldu út til að finna hann. mynd/himmi „
Við heyrðum hrópað á hjálp en vissum ekki hvaðan kallið kom," segja Valdimar og Óskar Axelssynir sem björguðu kafara úr lífsháska við Hjalteyri í Eyjafirði í fyrradag. Þegar bræðurnir urðu varir við köllin stukku þeir um borð í bát sinn og sigldu út úr höfninni. „Þegar við komum úr höfninni sáum við eitthvað standa upp úr sjónum. Þegar við komum nær reyndist þetta vera kafari. Hann hafði orðið loftlaus og var búinn að missa öll tök og búinn að losa sig við flesta kúta og þess háttar," segir Óskar. Kafarinn, sem er þrautþjálfaður, var eins og gefur að skilja farinn að óttast um líf sitt og vissi að hann væri kominn með kafaraveiki, enda hafði hann verið á miklu dýpi og þurft að fara hratt upp. Bræðurnir áttu erfitt með að ná kafaranum um borð og brugðu þá á það ráð að binda hann við síðu bátsins og sigla þannig með hann í land. „Við erum líka vanir að draga blöðruseli með þessum hætti," segir Óskar og hlær. „Hann hresstist nú allur við þegar við náðum honum." Bræðurnir sigldu með kafarann í land þar sem konur þeirra hlúðu að honum og hringdu í Neyðarlínuna. Kafarinn hafði ekki verið einn á ferð og fóru bræðurnir því aftur út til að leita að félaga hans. „Þegar við fundum hann var hann bara á kafi að leika sér," segir Valdimar. Kafararnir tveir höfðu orðið viðskila. Að sögn bræðranna var kafarinn strax viss um að hann væri með kafaraveiki og þyrfti því að fara á Landspítalann, en þar er eini þrýstijöfnunarklefinn á landinu. Maðurinn var fluttur með sjúkraflugi frá Akureyri til Reykjavíkur. Hann var fluttur á Landspítalann. Töluverður fjöldi kafara gerir út frá Hjalteyri og þar er meðal annars hægt að finna einstakar strýtur. kristjan@frettabladid.is
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Bein útsending: Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Sjá meira