Lífið

Ellefu hönnuðir sýna á Reykjavík Fashion Festival

Borghildur Gunnarsdóttir hannar undir merkinu Milla Snorrason og sýnir í fyrsta sinn á Reykjavík Fashion Festival í ár. Ellefu hönnuðir hafa verið valdir af 35 umsækjendum til að taka þátt í tískuhátíðinni í ár.
Borghildur Gunnarsdóttir hannar undir merkinu Milla Snorrason og sýnir í fyrsta sinn á Reykjavík Fashion Festival í ár. Ellefu hönnuðir hafa verið valdir af 35 umsækjendum til að taka þátt í tískuhátíðinni í ár. Mynd/Valli
„Það má kannski segja að saumavélarnar verða á yfirsnúningi næstu vikurnar," segir Borghildur Gunnarsdóttir fatahönnuður en hún tekur í fyrsta sinn þátt í Reykjavík Fashion Festival á þessu ári með merkið sitt Milla Snorrason.

Borghildur, eða Hilda eins og hún er kölluð, var meðal 35 hönnuða sem sóttu um að taka þátt í tískuhátíðinni, sem fer fram dagana 29. mars til 1. apríl. Ellefu hönnuðir koma fram á hátíðinni en sýningarnar fara fram í Hörpu og Gamla bíói.

„Ég er mjög ánægð með fá að sýna á hátíðinni og tel það vera mikilvægt skref að koma merkinu á framfæri á Íslandi," segir Hilda sem er nýflutt heim frá London þar sem hún vann hjá tískumerkjunum Peter Jensen og Erdem, en hún útskrifaðist frá fatahönnunarbraut Listaháskóla Íslands árið 2009.

„Það var mjög gaman að vinna hjá þessum flottu hönnuðum og það ýtti undir þá löngun hjá mér að koma mínu eigin merki af stað. Þess vegna kom ég heim og gef nú allt mitt í Milla Snorrason," segir Hilda en hún hefur komið sér upp stúdíói í bílskúrnum hjá foreldrum sínum þar sem fatalínan er að taka á sig mynd.

Hilda ætlar að stíga varlega til jarðar og segir að fatalínan verði ekki stór á þessari fyrstu sýningu. Hún hefur síðustu misseri verið að gera marglita hnésokka frá Milla Snorrason og selt á netinu en það hefur gengið vel.

„Núna er ég að gera heila fatalínu sem er spennandi. Ég er heilluð af þriðja, fjórða og fimmta áratugunum í tískunni og pæli mikið í ólíkum litasamsetningum," segir Hilda sem notast einungis við náttúruleg efni á borð við silki, bómull og ull.

„Ég reyni líka að hafa smá húmor í fötunum mínum og ekki taka þetta of alvarlega. Mig vantar sárlega eina saumagínu og ef einhver lumar á slíkri má sá hinn sami gjarna hafa samband við mig á millasnorrason@gmail.com."

Hilda sýnir í Gamla bíói 31. mars en hægt er fylgjast með henni á heimasíðunni millasnorrason.com.

alfrun@frettabladid.is

Hönnuðir sem sýna á RFF
Af sýningu Hildar Yeoman á RFF í fyrra.
Harpa 30. mars:

Kalda

Hildur Yeoman

Kormákur og Skjöldur

Kron by Kronkron

Mundi

ÝR



Gamla Bíó 31. mars:

Birna

ELLA

Milla Snorrason

Spakmannsspjarir

REY

RFF





Fleiri fréttir

Sjá meira


×