Strætóbílstjóri sakaður um glæfraakstur - Börn á slysadeild GS skrifar 2. október 2012 16:47
Það ræðst í dag hvort óskað verður lögreglurannsóknar á meintum glæfraakstri strætóbílstjóra í gær, þar sem fimm leikskólabörn meiddust og gera þurfti að meiðslum tveggja þeirra á slysadeild. Hátt í 20 fimm ára börn úr leikskólanum Hulduheimum í Grafarvogi voru að fara á milli staða í strætó, eins og gengur, en að sögn heimilda fréttastofu ók ökumaðurinn, sem var kona í þessu tilviki, óvenju glannalega, allt til þess að hún nam svo harkalega staðar á endastöð barnanna, að mörg þeirra köstuðust fram úr sætum sínum, enda engin öryggisbelti í strætó. Við það meiddust fimm börn og þurfti að flytja tvö þeirra á slysadeild til að fá gert að sárum þeirra, án þess að þau teldust þó alvarlega slösuð. Við atvikið urðu börnin skelfingu lostin og fóru mörg að gráta þannig að þau voru óvenju sein út úr vagninum. Að sögn heimildar fréttastofu gerðist vagnstjórinn þá óþolinmóður, sem jók enn á hræðslu barnanna auk þess sem starfsfólki var illa brugðið. Deildarstjóri í leikskólanum kom formlegum athugasemdum á framfæri við Strætó í gær, en eftir því sem fram kom á foreldrafundi í gærkvöldi, þar sem foreldrar voru áhyggjufullir vegna þessa, barst engin afsökunarbeiðni eða önnur viðbrögð frá Strætó. Bryndís Markúsdóttir leikskólastjóri á Hulduheimum staðfesti við Fréttastofu að börn úr skólanum hefðu meiðst í strætó í gær, og í dag yrði farið yfir málið með viðeigandi yfirvöldum skólamála í borginni. Að því loknu réðist hvert framhald máslins yrði, til dæmis hvort farið yrði fram á lögreglurannsókn. Ekki náðist í Reyni Jónsson forstjóra Strætó við vinnslu fréttarinnar í morgun.
Mest lesið Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Lindsey Graham er látinn Erlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Íran og Bandaríkin skiptast á árásum Erlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Innlent Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Fleiri fréttir Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Sjá meira