Innlent

Þjórshátíð fer fram næstu helgi

Þórdís, Elva og Sólveig eru á meðal ungmenna sem standa að hátíðinni sem verður haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardag en allir í hópnum tengjast svæðinu á einn eða annan hátt.
Þórdís, Elva og Sólveig eru á meðal ungmenna sem standa að hátíðinni sem verður haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardag en allir í hópnum tengjast svæðinu á einn eða annan hátt.
„Missum ekki tökin" er yfirskrift tónlistarhátíðarinnar Þjórshátíð sem fer fram um næstu helgi en markmiðið með henni er að vekja fólk til umhugsunar um náttúruna og afleiðingar óafturkræfra framkvæmda. Hugrún Halldórsdóttir hitti þrjá tónglaða og umhverfissinnaða skipuleggjendur í dag.

Þórdís, Elfa og Sólveig eru á meðal ungmenna sem standa að hátíðinni sem verður haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardag en allir í hópnum tengjast svæðinu á einn eða annan hátt.

„Maður spyr oft fólk og það veit kannski ekki endilega að það á að virkja þessi svæði og hefur kannski ekki komið þangað og er kannski ekki mikið hugsað um það þangað til að það gerist," segir Þórdís Björt Sigþórsdóttir.

Hátíðin verður sett klukkan eitt með málþingi um baráttuna fyrir verndun Þjórsár og síðar verður boðið upp á gönguferðir með leiðsögn, hestateymingar og fleira en tónleikadagskráin sjálf hefst klukkan fimm.

„Við viljum bara fá fólk til að koma á staðinn, sjá staðinn, koma í heimsókn. Sjá hvar fyrirhugaðar virkjanir munu vera og fræðast um þetta. Við viljum bara vekja athygli á málefninu... og eiga góðan dag í leiðinni á huggulegum stað með tónlist," segir sólveig Halldórsdóttir.

Þið hafið fengið marga tónlistarmenn og þekkt nöfn til liðs við ykkur?

„Já, Maggi Kjartans ætlar að koma og spila og hljómsveitin Valdimar. Svo eru Pascal Pinon og Vigri og Lovely Lion og Lockerbie, RetRoBot og fleiri, segir Elfa Ólafsdóttir.

Ætlið þið að spila sjálfar?

„Við erum í hljómsveit sem heitir Mannaveiðar og við ætlum kannski að spila tvö lög með Magga, hver veit," segir Þórdís.

En þetta er stutt frá höfuðborginni þannig að það ætti ekki að vera erfitt fyrir höfuðborgarbúa að kíkja í heimsókn?

„Nei, þetta er bara einn og hálfur tími að keyra þannig að ef maður er í stuði á laugardaginn og veit ekki hvað maður á að gera þá getur maður bara brunað uppeftir og notið náttúrunnar. Þetta er ókeypis hátíð svo verðum við að selja kjötsúpu á staðnum svo fólk þarf ekki að verða svangt," segir Sólveig svo.

Hér má svo finna slóðina á viðburðinn á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×