Þjórshátíð fer fram næstu helgi 13. júní 2012 20:00 Þórdís, Elva og Sólveig eru á meðal ungmenna sem standa að hátíðinni sem verður haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardag en allir í hópnum tengjast svæðinu á einn eða annan hátt. „
Missum ekki tökin" er yfirskrift tónlistarhátíðarinnar Þjórshátíð sem fer fram um næstu helgi en markmiðið með henni er að vekja fólk til umhugsunar um náttúruna og afleiðingar óafturkræfra framkvæmda. Hugrún Halldórsdóttir hitti þrjá tónglaða og umhverfissinnaða skipuleggjendur í dag. Þórdís, Elfa og Sólveig eru á meðal ungmenna sem standa að hátíðinni sem verður haldin í mynni Þjórsárdals í Gnúpverjahreppi á laugardag en allir í hópnum tengjast svæðinu á einn eða annan hátt. „Maður spyr oft fólk og það veit kannski ekki endilega að það á að virkja þessi svæði og hefur kannski ekki komið þangað og er kannski ekki mikið hugsað um það þangað til að það gerist," segir Þórdís Björt Sigþórsdóttir. Hátíðin verður sett klukkan eitt með málþingi um baráttuna fyrir verndun Þjórsár og síðar verður boðið upp á gönguferðir með leiðsögn, hestateymingar og fleira en tónleikadagskráin sjálf hefst klukkan fimm. „Við viljum bara fá fólk til að koma á staðinn, sjá staðinn, koma í heimsókn. Sjá hvar fyrirhugaðar virkjanir munu vera og fræðast um þetta. Við viljum bara vekja athygli á málefninu... og eiga góðan dag í leiðinni á huggulegum stað með tónlist," segir sólveig Halldórsdóttir. Þið hafið fengið marga tónlistarmenn og þekkt nöfn til liðs við ykkur? „Já, Maggi Kjartans ætlar að koma og spila og hljómsveitin Valdimar. Svo eru Pascal Pinon og Vigri og Lovely Lion og Lockerbie, RetRoBot og fleiri, segir Elfa Ólafsdóttir. Ætlið þið að spila sjálfar? „Við erum í hljómsveit sem heitir Mannaveiðar og við ætlum kannski að spila tvö lög með Magga, hver veit," segir Þórdís. En þetta er stutt frá höfuðborginni þannig að það ætti ekki að vera erfitt fyrir höfuðborgarbúa að kíkja í heimsókn? „Nei, þetta er bara einn og hálfur tími að keyra þannig að ef maður er í stuði á laugardaginn og veit ekki hvað maður á að gera þá getur maður bara brunað uppeftir og notið náttúrunnar. Þetta er ókeypis hátíð svo verðum við að selja kjötsúpu á staðnum svo fólk þarf ekki að verða svangt," segir Sólveig svo.Hér má svo finna slóðina á viðburðinn á Facebook.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Innlent Fleiri fréttir Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Sjá meira