Kæra lausagöngu sauðfjár 13. september 2012 08:00 Deilt er um lausagöngu sauðfjár í Dalabyggð. Þar þykir landeigendum á Erpsstöðum sem eigendur kindanna ættu að gæta þess að þær valdi ekki hættu og gangi á annarra manna lönd. Fréttablaðið/Vilhelm
Ábúendur á Erpsstöðum í Miðdölum í Dalabyggð hafa kært til lögreglu lausagöngu sauðfjár í sveitinni. Vísað er til kafla um ágang afréttarpenings í lögum um afréttarmálefni, fjallskil og fleira. Þar kemur fram að komi til ágangs búfjár sem heimilt sé að hafa í heimahögum beri sveitarstjórn að „láta smala ágangsfénaði og reka þangað, sem hann á að vera, á kostnað eigenda“, en í lögunum kemur jafnframt fram að sinni sveitarstjórn ekki skyldum sínum í þessum efnum, að mati lögreglustjóra, skuli hann láta smala ágangsfénaði á kostnað eigenda. Erindi ábúenda á Erpsstöðum var í ágúst tekið fyrir bæði í byggðarráði og sveitarstjórn Dalabyggðar. Í afgreiðslu sveitarstjórnar frá 21. ágúst er bent á að í Dalabyggð séu engir afréttir, heldur skiptist landið í heimalönd og önnur beitilönd sem nytjuð séu sem sumarhagar. Því eru ekki taldar forsendur til að sveitarstjórn eða fjallskilanefnd fyrirskipi smölun á svæðinu. „Sveitarstjórn tekur undir að brýnt sé að fjárheldar veggirðingar séu með vegum og hvetur Vegagerðina og landeigendur til að gera stórátak í þessu efni,“ segir í bókun sveitarstjórnar. „Við erum í miðri sveitinni og eigum ekki land að neinum afrétti,“ segir Helga Elínborg Guðmundsdóttir, bóndi á Erpsstöðum. „Og frá byrjun júlí streymir fé niður dalinn og frá afréttinum og dvelur löngum stundum á túnunum okkar.“ Hún segist vita að tún séu illa girt hjá þeim, en bendir á að fénaðurinn þurfi að fara í gegn um aðrar girðingar áður en komi að þeirra landi. „Girðingarnar sem eiga að halda þeim á afréttinum eru ónýtar og þetta bara afgreitt sem okkar mál. Síðan eru kindurnar náttúrulega líka að vappa hér uppi á þjóðvegi númer 60 [Vestfjarðavegi] sem liggur í gegn um landið okkar,“ bætir hún við og kveðst vita til þess að þar hafi í sumar verið ekið á að minnsta kosti tvö lömb. „Núna er komið haust og farið að dimma klukkan tíu og stórhætta sem af þessu stafar.“ Guðbrandur Þorkelsson, formaður fjallskilanefndar í Dalabyggð, segir meirihluta sauðfjár bænda í sveitarfélaginu halda sig uppi í fjöllum þar sem hann eigi að vera, en viðurkennir þó að undanfarin þrjú ár hafi stóraukist sá fjöldi sem er niðri í byggð yfir sumartímann. Hann segir lítið hægt að gera í þessu, annað en að Vegagerðin sinni því betur að girða af vegi. olikr@frettabladid.is
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira