Handbolti

Ljónin hans Guðmundar unnu fimmta leikinn í röð

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/Getty
Lærisveinar Guðmundar Þórðar Guðmundssonar hjá Rhein-Neckar Löwen lögðu HSG Wetzlar 31-29 í fimmtu umferð efstu deildar þýska handboltans í dag.

Heimamenn í Löwen höfðu forystu í leiknum frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Gestirnir voru þó aldrei langt undan og minnkuðu muninn í eitt mark þegar mínúta lifði leiks. Nær komust þeir þó ekki.

Uwe Gensheimer var markahæstur heimamanna með sjö mörk en Steffen Fäth skoraði átta mörk fyrir gestina. Alexander Petersson skoraði tvö mörk fyrir Löwen en Kári Kristján Kristjánsson tvö og Fannar Friðgeirsson eitt fyrir Wetzlar.

Löwen er með tíu stig í efsta sæti deildarinnar að loknum fimm leikjum. Wetzlar hefur sex stig í fimmta sæti.

Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Minden sem vann fjögurra marka sigur á Essen, 30-26.

Önnur úrslit

Gummersbach 24-32 TuS N-Lübbecke

TV 1893 Neuhausen 24-28 Frisch Auf Göppingen



Stöðuna í deildinni má sjá hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×