Lífið

Stakk sér ofan í undirheimana

Jóhannes Haukur Jóhannesson, vinur Þorvaldar Davíðs, sem einnig leikur í Svartur á leik, æfði stíft og bætti á sig miklum vöðvum fyrir sitt hlutverk. "Ég þurfti hins vegar að grenna mig,“ segir Þorvaldur Davíð. "Það var sameiginleg ákvörðun mín og leikstjórans að hafa Stebba mjóan og dálítið klikkaðan.“
Jóhannes Haukur Jóhannesson, vinur Þorvaldar Davíðs, sem einnig leikur í Svartur á leik, æfði stíft og bætti á sig miklum vöðvum fyrir sitt hlutverk. "Ég þurfti hins vegar að grenna mig,“ segir Þorvaldur Davíð. "Það var sameiginleg ákvörðun mín og leikstjórans að hafa Stebba mjóan og dálítið klikkaðan.“ fréttablaðið/anton
„Ég hef verið á milljón síðan ég kom, í ýmsu stússi fyrir myndina og svo er ég líka að skoða önnur verkefni fyrir árið. Á þeim vígstöðvum er ýmislegt á seyði en ekkert þó svo fast í hendi að ég geti greint frá því. Reyndar hef ég ekki tölu á því hversu oft ég hef flogið fram og til baka í vetur og gæti best trúað því að svona verði það næstu árin. Þetta er ansi mikið flakk," segir leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson þegar hann sest niður með blaðamanni á Kaffivagninum í örstuttu stoppi hér á landi.

Þorvaldur býr í Los Angeles á vesturströnd Bandaríkjanna en hyggst heimsækja Ísland aftur í lok mánaðarins vegna frumsýningar kvikmyndarinnar Svartur á leik í leikstjórn Óskars Þórs Axelssonar. Þorvaldur fer með sitt fyrsta aðalhlutverk í myndinni og er að vonum spenntur fyrir útkomunni.

Fór á rúntinn í dóp-partíSvartur á leik er byggð á samnefndri skáldsögu Stefáns Mána frá árinu 2004 og fjallar um átök í undirheimum Reykjavíkur, sem er ekki lengur lítil, saklaus borg, í kringum aldamótin síðustu. Þorvaldur fer með hlutverk ungs manns að vestan, Stefáns Kormáks Jónssonar (nafn sem myndi hæfa presti í Kollafjarðarnesi, eins og Þorvaldur Davíð kemst að orði) sem ávinnur sér gælunafnið Stebbi „psycho" eftir því sem á líður söguþráðinn. Stebbi flytur í bæinn, gengur illa í Iðnskólanum og flækist inn í heim glæpa og eiturlyfja.

Þetta eru þá væntanlega dekkstu hliðar Reykjavíkur sem kafað er ofan í?

„Já. Í raun fjallar myndin öðrum þræði um þróun íslensks glæpaheims, hversu mikil harka hljóp í hann á þessum tíma í kringum aldamótin, og þessi heimur verður sífellt hrottalegri. Persónan sem ég leik, Stebbi „psycho", hittir gamlan kunningja sinn frá sveitaplássinu fyrir vestan, Tóta, og biður hann um að gera sér greiða. Tóti er sjóaður í bransanum og þegar fólk er byrjað að þiggja greiða í þessum heimi er erfitt að komast út úr þeim vítahring. Stebba finnst þetta spennandi til að byrja með en eftir því sem hann sekkur dýpra og grefur upp meiri skít líður honum verr og verr og fer nánast niður til helvítis. Samt á hann erfitt með að losa sig. Þannig er nú fíknin."

Hvernig undirbjóstu þig fyrir hlutverkið?

„Ég lagðist í meðvitaða rannsóknarvinnu, fór meðal annars á rúntinn með eiturlyfjasölum og í nokkur dóp-partí. Ísland er svo lítið land og einhver þekkir alltaf einhvern. Það þurfti bara nokkur símtöl til og ég var kannski kominn í partí á þriðjudagskvöldi þar sem flestir voru í neyslu. Í þessum heimi er keyrsla allan sólarhringinn og engu skiptir hvaða dagur er. Þetta var vissulega skrýtið að ganga í gegnum þessa reynslu. Dapurlegast þótti mér að horfa í augun á mörgum og merkja falinn harm sem leynist í þeim. Flestir sem eru í neyslu vilja komast út úr henni en vita ekki hvernig þeir eiga að fara að því. Þegar ég bý til karakter í samvinnu við leikstjórann reyni ég að skilja hvernig sá karakter hugsar, stúdera muninn á samfélaginu nú og þá og reyni að skilja neysluna, hvernig líkaminn bregst við ákveðnum fíkniefnum. Ég vinn dálítið eins og rannsóknarlögreglumaður. Leita að vísbendingum og einhvers konar svari, sem þó er aldrei fullmótað því manneskjan er svo margbreytileg."

Raunveruleg mynd af ReykjavíkUndirheimarnir eru fullir af ofbeldi, eins og þú bendir á, og myndin væntanlega líka. Mun Svartur á leik hneyksla áhorfendur?

„Myndin gæti eflaust hneykslað ákveðinn aldurshóp. En best gæti ég trúað að fólk verði fyrst og fremst sjokkerað að sjá að svona er raunveruleikinn. Mörg af atvikunum í myndinni eru byggð á sönnum atburðum og eru því raunveruleg."

Mæddi mikið á þér í þínu fyrsta aðalhlutverki við upptökur á myndinni?

„Já, því ég leik aðalsöguhetjuna, sögumanninn, og kem fyrir í næstum hverju einasta atriði í myndinni. Ég var alltaf á staðnum og þetta voru langir vinnudagar. Sumir halda að það sé eintómur glamúr að leika í bíómynd, en það er lítill glamúr í því að bíða blautur í kaldri rútu í Hvalfirði um miðja nótt eða láta berja sig í snjónum. Að því sögðu var þetta auðvitað yndisleg reynsla og algjör forréttindi að taka þátt í gerð myndarinnar."

Reyndu upptökurnar á þig líkamlega?

„Slagsmálaatriði og kynlífssenur reyna á mann bæði líkamlega og andlega. Þessi mynd er í raun eitt stórt adrenalínrúss og tók virkilega á. Ég fann ekki fyrir miklu stressi, en þjáðist af svefnleysi og á tímabili var ég kominn með álagsbólur á vangana. Bólurnar sjást í myndinni og ég er enn að berjast fyrir því að þær verði teknar fram í kreditlistanum í lok myndarinnar. Það getur líka vel verið að öll þessi neikvæða orka í kringum þennan heim sem ég setti mig inn í hafi haft sitt að segja. Ég trúi á samband líkama og sálar, þótt ég sé alls enginn spíritisti."

Áhugamálin setið á hakanumSíðustu fjögur árin hefur Þorvaldur stundað leiklistarnám í hinum virta Juilliard-listaháskóla í New York, en hann útskrifaðist úr skólanum í vor.

Hvernig er svo tilfinningin að vera útskrifaður leikari?

„Hún er góð. Ég hef auðvitað leikið á sviði frá því ég var tólf ára patti, en það var mikill léttir að útskrifast því þetta var að vissu leyti erfitt nám. Frábært nám og gagnlegt, en gerði það að verkum að ég hafði lítið svigrúm til að láta hugann reika og öll áhugamál sátu á hakanum. Það tók líka dálítið á að vera útlendingur og leika á öðru tungumáli en ég er vanur. Í raun og veru er ég fyrst að ná áttum núna eftir þetta allt saman."

Þú segir áhugamálin hafa setið á hakanum, hafðirðu þá engan tíma til að spila fótbolta?

„Nei, ekki enn þá en núna er ég að leita mér að fótboltahópi í Los Angeles til að spila með. Ég var mikið í fótbolta fram að fimmtán ára aldri eða svo og var nokkuð góður, spilaði með fantagóðu liði Þróttar, varð Íslandsmeistari í 6. flokki og nokkrum sinnum Reykjavíkurmeistari. En ég var alltaf frekar lítill, dálítið tilfinninganæmur listamaður líklega, og held ég hafi valið rétt þegar ég valdi leiklistina fram yfir boltann. Fótboltinn fer þó aldrei úr mér og mér finnst rosalega gaman að spila hann."

Í náminu fæddist þó annað áhugamál hjá þér, tónlistin, sem varð til þess að þú hefur gefið út nokkur lög?

„Já, ég byrjaði að læra á gítar til að bæta samhæfinguna, að gera nokkra hluti í einu eins og að syngja og spila, gagngert til að verða betri leikari. Svo fór ég að semja lög [lagið Sumarsaga sem Þorvaldur Davíð samdi ásamt æskuvini sínum, grínistanum og rithöfundinum Sólmundi Hólm, náði nokkrum vinsældum sumarið 2009] og geri enn. Einhvern tíma geri ég plötu, en fyrst og fremst er tónlistin áhugamál hjá mér. Ég hlusta á flestar tegundir af tónlist og læt skapið ráða för. Þegar ég fer út að skokka hef ég Metallica í botni, Chopin hlusta ég á meðan ég læri, Stevie Wonder þegar ég er að koma mér í gírinn og svo framvegis."

Best að leika á íslenskuEins og áður sagði flutti Þorvaldur Davíð frá New York til Los Angeles ásamt Hrafntinnu Karlsdóttur unnustu sinni og hefur parið nýlega komið sér fyrir í íbúð í austurhluta Hollywood Hills-hverfisins. Leikarinn er þar með samning við umboðsskrifstofu og segist hafa í hyggju að einbeita sér fyrst og fremst að kvikmyndaleik á næstunni, þótt hann sé reiðubúinn að skoða verkefni hvar og hvernig sem þau bjóðast.

„Skemmtilegast finnst mér þó að leika á íslensku, því tungumálið er í mér. Ég kann mjög vel við mig í Los Angeles og borgin er skemmtilegri en ég þorði að vona. Í New York labbaði maður um allt en í Los Angeles er maður alltaf að krúsa um með K-EARTH 101 í útvarpinu og njóta sín í sólinni. Kærastan mín er mikil félagsvera og við erum aðeins farin að kynnast fólki, ætlum til dæmis að mæta á þorrablótið sem verður haldið í byrjun mars. Ég get vel hugsað mér að búa í Los Angeles næstu árin, en við sjáum hvað setur."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×