Innlent

Brynjar Níelsson: Of þungur dómur og í engu samræmi við fordæmin

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.
„Þetta er í engu samræmi við það sem dæmt hefur verið áður," segir Brynjar Níelsson, verjandi karlmanns sem var dæmdur í tíu mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að koma ekki deyjandi stúlku til hjálpar sem hafði neytt fíkniefnis sem innihélt eitrið PMMA. Maðurinn, sem er fæddur árið 1987, hafði verið að skemmta sér á heimili sínu ásamt stúlkunni og fleirum aðfaranótt 30. apríl árið 2011. Stúlkan sem neytti fíkniefnanna fór inni í herbergi vegna eitrunaráhrifa en þar lést hún skömmu síðar.

Meðal gagna sem lögð voru fram í dómsmálinu var myndbandsupptaka sem sýndi stúlkuna í dauðastríði sínu í rúminu. Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur segir orðrétt að „A [stúlkan sem neytti efnanna] hefur liðið miklar líkamlegar kvalir fyrir andlát sitt."

Meðal þeirra sem kallaðir voru til vitnis var útlendur réttarmeinafræðingur sem sagði að „í samanburði við fyrri reynslu, sé réttlætanlegt að ásaka hann [hinn dæmda] fyrir að hafa látið undir höfuð leggjast að veita hjálp því hin langvarandi breyting á líkamlegum viðbrögðum [stúlkunnar] blasi við og megi sjá hversu hættuleg hún sé til dæmis á sýnilegum breytingum á öndun og illri áttum. Það hafi verið rökrétt afleiðing af því að kalla til lækni eða sjúkrabíl."

Brynjar segist ósammála mati sérfræðinga í málinu og vill meina að maðurinn hafi að lokum sannarlega kallað eftir aðstoð þegar ljóst var hvert ástand hennar var. Hann segir niðurstöðu dómsins leggja ríkari ábyrgð á almenning en hann bendir á að skjólstæðingur sinn hafi sjálfur verið undir áhrifum fíkniefna í þessum örlagaríku aðstæðum.

Brynjar segir niðurstöðuna bratta og trúir því ekki að hún haldi í Hæstarétti, en skjólstæðingur hans hefur þegar lýst því yfir að hann muni áfrýja málinu. Hann bendir jafnframt á að refsiramminn fyrir svona brot séu tvö ár. Undir eðlilegum kringumstæðum hefði skjólstæðingur hans átt að fá tvo til sex mánuði að mati Brynjars.

„Maður hefur satt að segja tilfinningu fyrir því að þarna sé verið að sakfella fyrir eitthvað annað," segir Brynjar en það var skjólstæðingur hans sem hafði eitraða fíkniefnið undir höndum og gaf stúlkunni auk annarra gesta í samkvæminu en hann var einnig sakfelldur fyrir að hafa haft fíkniefni undir höndum.


Tengdar fréttir

Myndband til af dauðastríði stúlku sem lést vegna banvæns fíkniefnis

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að koma ekki ungri konu til hjálpar áður en hún lést eftir að hafa neytt fíkniefna sem innihéldu eiturefnið PMMA á síðasta ári. Aðalmeðferð fór fram í málinu í dag samkvæmt fréttastofu RÚV en maðurinn neitar sök.

Tíu mánaða fangelsi fyrir að bregðast deyjandi stúlku

Karlmaður var dæmdur í tíu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir stundu fyrir að hafa ekki komið ungri konu til hjálpar sem hafði neytt eitraðs fíkniefnis, sem dró hana að lokum til dauða. Konan neytti fíkniefnis sem er kallað PMMA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×