Reisa 230 íbúðir við Þverholt og Einholt 8. september 2012 05:30 Tillagan gerir ráð fyrir uppbyggingu íbúða á 3 til 5 hæðum á suðurhluta reits, en norðurhlutinn er að mestu óbreyttur. Á suðurhluta er gert ráð fyrir fjölbreyttum gerðum íbúða og bílageymslum á tveimur hæðum í kjallara.mynd/ask arkitektar
Búseti hyggur á byggingu 230 íbúða á reit sem markast af Einholti, Stórholti, Þverholti og Háteigsvegi. Deiliskipulag á svæðinu var fellt úr gildi og nýtt skipulag, sem gerir ráð fyrir byggingunum, var kynnt hagsmunaaðilum á fimmtudag. Verði skipulagið að veruleika gætu framkvæmdir hafist næsta vor. Byggingarfélag námsmanna átti reitinn, en til stóð að reisa allt að 500 íbúðir á svæðinu. Við gjaldþrot félagsins eignaðist fasteignafélagið Reginn reitinn. Hann var boðinn út í fyrrahaust og síðan gengið að tilboði Búseta í mars. Guðrún Ingvarsdóttir, verkefnisstjóri þróunarverkefna hjá Búseta, segir félagið hafa fundað með fulltrúum íbúasamtaka áður en gengið var til samninga um kaup á reitnum. Hugmyndir Búseta hafi fallið í góðan jarðveg og því hafi orðið af verkefninu. „Ef allt gengur vel vonumst við til þess að skipulagið verði frágengið í lok árs. Þá getum við hafið framkvæmdir í vor og hægt verður að flytja inn í fyrstu íbúðir árið 2014.“ Guðrún segir framkvæmdir líklega verða í þremur áföngum og ekki líði nema ár á milli áfanganna. Steinunn Þórhallsdóttir, formaður Íbúasamtaka 3. hverfis (Hlíðar, Holt og Norðurmýri) segir ferlið í kringum hugmyndir Byggingarfélags námsmanna hafa einkennst af miklum yfirgangi. „Þarna er núna djúp og sorgleg hola í jörðina, sem sprengd var við mikil mótmæli íbúa í kring í góðærinu.“ Hún er ánægð með framgang málsins hjá Búseta, uppbyggingin lúti allt öðrum lögmálum, húsin séu færri og lægri. „Þau hafa verið í samráði við íbúasamtökin og eru að reyna að virkja sem flesta í að hafa skoðun á þessu áður en þau skila inn skipulagstillögu.“ Skipulagið var kynnt hagsmunaaðilum á fundi á fimmtudag og gefst öllum kostur á að koma athugasemdum sínum á framfæri. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira